Hjólböruganga til styrktar Krabbameinsfélaginu
Hugi Garðarsson er 21 ára göngugarpur sem gengur nú hringinn í kringum landið til styrktar Krabbameinsfélaginu og til minningar um ömmu sína sem lést úr krabbameini. Síðastliðin þriðjudag var hann staddur á Höfn eftir að hafa byrjað gönguna á Þingvöllum fyrir 59 dögum og lagt að baki rúmlega 2000 km. Markmiðið er að heimsækja 70 bæi...
Sögustund á bókasafninu
Starfsfólk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar hefur ákveðið að endurvekja sögustundir á Bókasafninu í samstarfi við gestalesara. Frumraunin var laugardaginn 28. október og tókst sú stund einstaklega vel. Vel var mætt og voru 26 krakkar að hlýða á sögurnar þegar mest var, auk foreldra, yngri og eldri systkina. Stefnt verður að því að hafa Sögustundirnar annan hvern laugardag kl. 13:30-14:00 og miðast...
Leiksýningin Fílamaðurinn
Leikfélag Hornafjarðar ásamt Lista- og menningarsviði FAS munu frumsýna verkið Fílamaðurinn í Mánagarði föstudaginn 22. mars. Við birtum hér viðtal við Birtu Gunnarsdóttur og Ísar Svan Gautason, leikara í leiksýningunni.
Hver eru nöfn ykkar og hvaða hlutverki gegniðþið í leiksýningunni?
Birta: Birta Gunnarsdóttir og ég leik Kendal
Ísar: Ísar Svan Gautason heiti ég og ég leik John Merrick eða Fílamanninn.
Hversvegna ákváðu þið...
Fréttir úr Þrykkjunni
Í október mánuði og það sem af er nóvember hefur nóg verið að gera hjá ungmennum sem sækja Þrykkjuna félagsmiðstöð. Í október var haldið upp á hrekkjavökuna aldursskipt. Tess Rivarola starfsmaður Þrykkjunnar föndraði með yngri hópnum í 5.-7. bekk grímur og ákveðið var út frá því að hafa samband við foreldra og íbúa Hornafjarðar til að fá...
Annarlok Fræðslunetsins
Í vor lauk þremur íslenskunámskeiðum ásamt einu námskeiði í símenntun fatlaðs fólks sem Fræðslunetið stóð að. Tveir hópar á Höfn, samtals 28 nemendur, luku íslensku 2 og 11 nemendur luku íslensku 4 en Hlíf Gylfadóttir sá um kennsluna. Í Öræfum luku 12 nemendur íslensku 2 en Margrét Gauja Magnúsdóttir og Magnhildur Björk Gísladóttir skiptu kennslunni þar á milli sín....