Þorvaldur þusar 26.október
Þannig er það nú
Nú um stundir er mikið rætt um hvers kyns samráð. Ég er ekki alveg með á nótunum í þessari umræðu. Ég veit ekki betur en samráð hafi viðgengist um áraraðir í okkar annars ágæta samfélagi. Hver man ekki eftir samráði olíufélaganna eða samráði fyrirtækja á dagvörumarkaði svo nefnd séu...
Birkiskógurinn á Skeiðarársandi
Þeir sem eiga leið um Skeiðarársand geta allir orðið vitni að miklum breytingum á náttúrunni. Mest áberandi eru birkitrén sem mynda nú samfellda breiðu um miðbik sandsins. Í FAS viljum við gjarnan að nemendur verði meðvitaðir um umhverfi sitt og kynnist um leið vísindalegum vinnubrögðum. Fimmtudaginn 27. ágúst síðastliðinn fóru þrettán nemendur í FAS sem allir stunda...
Hornfirskt grænmeti frá Hólmi
Við Guðrún og Magnús, eða Gunna og Maggi eins og flestir þekkja okkur, rekum gistingu í Hólmi og veitinga/brugghúsið Jón Ríka. Ásamt því eigum við kindur og önnur dýr bæði til ánægju og nytja. Líkt og svo margir aðrir í ferðaþjónustugeiranum, horfðum við sl. vetur á afbókanir renna í gegnum tölvupóstinn eins og...
Nýheimar – þekkingarsetur tekur við þjónustu við háskólanema á Hornafirði
Undanfarin misseri hefur Háskólafélag Suðurlands í samvinnu við Fræðslunet Suðurlands veitt háskólanemum á Hornafirði þjónustu í tengslum við próftöku og aðgang að lesaðstöðu í Nýheimum.
Á fundum stjórna Háskólafélags Suðurlands og Nýheima - þekkingarseturs í október var ákveðið að Nýheimar - þekkingarsetur muni framvegis þjónusta háskólanema á Hornafirði. Háskólafélagið mun áfram vera aðili að Nýheimum - þekkingarsetri og við þetta...
Óslandið tekið í gegn
Laugardaginn 5. maí síðastliðinni blésu Umhverfissamtök Austur-Skaftafellssýslu til strandhreinsunar. Tilefnið var Norræni strandhreinsunardagurinn sem er samnorrænt átak þar sem strendur eru hreinsaðar af plasti og öðru rusli. Í ár var það Óslandið á Höfn og fjörurnar þar sem urðu fyrir valinu.
Rétt um 30 sjálfboðaliðar mættu við Gömlubúð á laugardagsmorgni og létu smá rigningu og rok ekki stoppa sig í...