Bráðabirgðarbrú yfir Steinavötn
Þjóðvegur 1 er enn lokaður við Hólmsá á Mýrum þar sem vegurinn fór í sundur, og einnig við Steinavötn í Suðursveit þar sem brúin laskaðist töluvert í vatnsvöxtum síðustu daga.
Samkvæmt Vegagerðinni er brúin á Steinavötnum svo illa farin að byggja þarf nýja brú. Vinna er hafin við að koma upp bráðabirgðarbrú en áætlað er að byggingartími hennar sé ein vika gangi...
Matarvagninn Sweet & Savory opnaður
Síðastliðinn mánudag var opnaður nýr matarvagn á Höfn, Sweet & Savory og er boðið upp á Crepes. Það er ungt par frá Tékkóslóvakíu sem rekur vagninn, þau Ladislav og Martina. Þau komu fyrir nokkrum árum til Íslands og bjuggu í Suðursveit til að byrja með en hafa búið núna á Höfn í næstum tvö ár. Þau kunna...
Brasilísk að uppruna en íslendingar í hjartanu
Að flytja til nýs lands er merkileg lífsreynsla, það felur í sér að skilja eftir hið kunnuglega og umfaðma hið óþekkta. Eystrahorn settist niður með Luiz Carlos da Silva og Alessandra Kehl sem fluttu til Íslands frá Brasilíu og hafa búið á Hornafirði í áratug. Luiz starfar sem tónlistarkennari við Tónskóla A-Skaft og Alessandra starfar á hjúkrunarheimilinu....
Nýsköpunarverkefni á vegum Náttúrustofu Suðausturlands fékk 8.5 milljóna styrk
Nýlega úthlutaði Loftslagssjóður styrkjum í verkefni ársins 2021. Sjóðnum bárust 158 umsóknir og voru 24 þeirra styrktar eða um 15% umsókna sem sóttu um, 12 nýsköpunarverkefni hlutu styrk og 12 kynningar- og fræðsluverkefni. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum, en hann heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra. Hlutverk sjóðsins er að styðja við verkefni...
Opið hús í leikskólanum Sjónarhóli
Opið hús var í leikskólanum Sjónarhóli 1. nóvember síðastliðinn. Þar gafst gestum kostur á að skoða húsið og spyrja út í starfsemina. Boðið var upp á kaffi og kruðerí í salnum. Starfsfólk var á öllum svæðum í húsinu til að geta sagt frá og sýnt svæðin. Mæting var góð og mættu yfir 100 manns. Starfsfólk var mjög ánægt með...