Menningarmiðstöð Hornafjarðar í samvinnu við Uppbyggingarsjóð Suðurlands, Skinney-Þinganes, Þorstein Sigurbergsson ljósamann og Tjörva Óskarsson hélt Sundlaugarpartí sunnudagskvöldið 17. janúar. Þorsteinn útbjó lýsingu sem vann með vatnsflötinn, gufuna og ef segja má, skammdegið og ljósleysið. Staðarlistarmennirnir gímaldin og Subminimal spiluðu nokkur lög áður en dj. flugvél og geimskip kom og flutti stuðprógram sem endasenti áhorfendum um allan þekktan kosmós sem óþekktan, og las þeim gagnlegar lífsreglur og kenndi hamingjumöntrur.
Mætingin var stórfín og ekki annað að sjá en að krakkarnir hafi skemmt sér gríðarvel, og þau fullorðnu jafnvel líka.
Svo er bara næst að huga að stóru sumar-sundlaugarpartíi.
Fylgist með.
Myndirnar tók Tim Junge