Keppnin Sterkasta kona Íslands fór fram laugardaginn 15. ágúst sl. á Akureyri í blíðskapar veðri. Samtals voru 9 keppendur og keppt var í opnum flokki og undir 82kg flokki. Keppt var við húsnæði Bílaklúbbs Akureyrar. Dómarar voru Kristján Sindri Níelsson og Ingibjörg Óladóttir.
Keppt var í 5 greinum, loggur, réttstöðulyftu á tíma 60sek, grindarburði 160kg og 180kg, pokahleðslu 50-80 kg og steina lyftum.
Hornfirðingurinn Lilja B. Jónsdóttir var ein af keppendunum og var þetta í 10 skiptið sem hún tók þátt. Lilja stóð sig frábærlega. Hún varð í 1. sæti í -82kg flokki og lenti í 3.sæti í opna flokknum. Mikil barátta var í -82kg flokknum en aðeins munaði hálfu stigi á 1. og 2. sæti.
Við óskum Lilju til hamingju með árangurinn.
Hér eru úrslit úr keppninni.
Opin flokkur:
- Ellen Lind Ísaksdóttir 40,5
- Ragnheiður Ósk Jónasdóttir 38
- Lilja B. Jónsdóttir 32,5
- Veiga Dís Hansdóttir 30,5
- Hugrún Ýr Sigurðardóttir 30
- Lillý Ösp Sigurjónsdóttir 18
- Hulda Rós Blöndal Snorradóttir 17,5
- Snæfríður Birta Björgvinsdóttir 11
- Margrét Ársælsdóttir 7
Undir 82kg flokkur:
- Lilja B. Jónsdóttir 19,5
- Veiga Dís Hansdóttir 19
- Hugrún Ýr Sigurðardóttir 16,5
- -5. Hulda Rós Blöndal Snorradóttir 10 og Lillý Ösp Sigurjónsdóttir 10