Matjurtagarðar á Höfn

0
1153

Á tímum þar sem heimsfaraldur geisar er ekki hjá því komist að leiða hugann að sjálfbærni og hvernig fólk getur ræktað sitt eigið grænmeti.
Að rækta matvæli í þéttbýli er ekki nýtt fyrirbæri, hægt er að sjá dæmi um slíkt um allan heim. Hér á Íslandi höfum við til dæmis langa hefð fyrir skólagörðum, þar sem börn hafa fengið tækifæri að læra á matjurtaræktun, og bæjarfélög um allt land bjóða íbúum sínum svæði til matjurtaræktunar. Á Íslandi getum við auðveldlega ræktað allt það grænmeti sem við þurfum, með mismunandi aðferðum og tækni getum við fengið fjölbreytta uppskeru.
Samfélagsmatjurtargarðar eða félagsbúskapur hefur orðið vinsælli á seinustu árum og eru dæmi um slíkt meðal annars í Breiðholti í Reykjavík og á Ísafirði. Ef þið hafði áhuga á slíku mæli ég með innslagi frá Landanum á RÚV sem sýnt var 29. mars síðastliðinn. Einnig er hægt að finna fyrirlestur á Youtube um félagslandbúnað: Fyrirlestur um félagslandbúnað. Ég hvet áhugasama um félagslandbúnað að finna facebook hópinn “Félagslandbúnaður í Hornafirði” og óska eftir inngöngu.
Samþykkt var á seinasta umhverfis og skipulagsnefndarfundi að hefja vinnu við gerð matjurtagarða á Höfn. Garðarnir gætu nýst einstaklingum, félagasamtökum eða sem skólagarðar. Eitt af áherslumálum umhverfisstefnu sveitarfélagsins er að tryggja framboð svæða til matjurtaræktunar og að hvetja íbúa til ræktunar. Á næstu vikum verða garðarnir útbúnir og í kjölfarið auglýstir og úthlutaðir.
Nýju matjurtagarðarnir koma ekki í staðinn fyrir kartöflugarðana sem eru á Höfn, þeir eru hugsaðir sem viðbót við það sem fyrir er.
Ef fólk hefur áhuga á að forspíra grænmeti eða kryddjurtir þá er rétti tíminn núna.
Sjáumst í matjurtagörðunum í sumar!

Anna Ragnarsdóttir Pedersen,
umhverfisfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar.