Gæðamenntun fyrir alla – ný menntastefna

0
1161

Mennta- og menningar­málaráðherra hefur sett af stað vinnu um mótun menntastefnu til 2030. Ný menntastefna mun setja í forgang þær miklu áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir í mennta- og velferðarmálum og hafa heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun til hliðsjónar. Leiðarljós nýrrar menntastefnu verður gæða­menntun fyrir alla. Mennta- og menningarmálaráðuneytið leitaði til Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir um að taka út framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Miðstöðin skilaði úttektar­skýrslu vorið 2017. Til að vinna að innleiðingu tillagna ráðherra, sem margar hverjar byggja á úttektinni, var stofnaður stýrihópur vorið 2017. Í stýrihópnum sitja nú fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, félags- og jafnréttismála og heilbrigðismála, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitar­félaga, Kennarasambands Íslands, Skólameistarafélags Íslands, Heimilis og skóla og Háskóla Íslands fyrir hönd kennaramenntastofnana.
Á haustmánuðum 2018 verða haldnir 23 fræðslu- og umræðufundir um allt land um menntun fyrir alla, sem lið í mótun nýrrar menntastefnu.
Miðvikudaginn 31. okt. sl. fundaði stýrihópurinn á Höfn með fólki úr Sveitarfélaginu Hornafirði, Djúpavogshreppi og Skaftár­hreppi. Haldnir voru tveir fundir og var sá fyrri með forsvarsmönnum sveitar­félaga og ábyrgðar­aðilum málaflokka mennta-, velferðar- og heilbrigðismála. Seinni fundurinn var með fulltrúum kennara og foreldra allra skólastiga ásamt starfsmönnum skóla- félags- og heilbrigðismála í sveitarfélaginu. Samtals tóku þátt um 60 manns.
Markmið fundanna var:

  • Að kynna og ræða helstu tillögur er snerta kerfislægt samstarf sem styður við framkvæmd menntunar fyrir alla sem leiðarljós nýrrar menntastefnu.
  • Að ræða samstarf allra aðila í heimabyggð er koma að menntun fyrir alla og leggja drög að myndun tengsla-og samstarfsnets með tengingu við stýrihóp og aðrar áætlanir stjórnvalda.