Nýtt klippikort
verður tekið í notkun á endurvinnslusvæði sveitarfélagsins.
Frá og með 1. október þurfa íbúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar klippikort til að komast inn á endurvinnslusvæðið á Höfn.
Klippikortin er hægt að nálgast í afgreiðslu Ráðhúss, einungis fasteignaeigendur íbúða/húsa sem greiða sorphirðugjöld fá afhent kort. Leigjendur verða að fá kortin afhent af leigusala sínum.
Tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu en klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang. Hvert klipp gildir fyrir 0,25 m3 sem samsvarar 240 l. heimilistunnu. Á hverju korti eru 16 klipp sem duga samtals fyrir 4 m3. Að öllu jöfnu á kortið að gilda út árið. Klárist kort þá verður hægt að kaupa aukakort í afgreiðslu Ráðhúss.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is.