Á nýju ári verður sveitarfélögum skylt að safna fjórum úrgangsflokkum við hvert heimili í þéttbýli þ.e. pappa og pappír, plasti, matarleifum og blönduðum úrgangi. Úrgangsflokkarnir verða að vera aðskildir við söfnun og því er nauðsynlegt að gera breytingar á núverandi fyrirkomulagi.
Söfnunina má framkvæma með ýmsum hætti og því vill sveitarfélagið kanna afstöðu íbúa í þéttbýli til mögulegra breytinga. Markmiðið er að innleiða breytt kerfi á fyrri hluta næsta árs.
Á heimasíðu sveitarfélagsins má nálgast könnun um sorphirðu í þéttbýli sveitarfélagsins og eru áhugasamir hvattir til að láta sína skoðun í ljós. Könnunin stendur yfir frá 8. – 22. desember.
Í könnuninni er hægt að velja um tvo möguleika. Helstu kostir og gallar hafa verið dregnir saman hér að neðan með tilliti til hvorrar leiðar íbúum hugnast að fara. Þátttakendur könnunarinnar geta einnig skrifað nafnlausar athugasemdir við valkostina og þannig komið sinni skoðun á framfæri.
Um viðhorfskönnun er að ræða og er hún því ekki bindandi. Markmið könnunarinnar er fyrst og fremst að kanna hvaða fyrirkomulag íbúar í þéttbýli myndu helst vilja við söfnun úrgangs.
Í könnuninni má velja milli tveggja valkosta:
Með valkosti 1 yrðu fjórar tunnur við hvert heimili í þéttbýli undir pappír og pappa, plast, matarleifar og blandaðan úrgang.
Kostir | Gallar |
Mest rúmmálsmagn fyrir íbúa. | Tekur mest pláss á lóð íbúa og getur spillt ásýnd heimila. |
Mestur sveigjanleiki við ákvörðun á hirðutíðni. | Sum sorpskýli aðeins gerð fyrir þrjár tunnur |
Bestun á hirðutíðni lágmarkar kostnað fyrir íbúa til framtíðar. | Byrjunarkostnaður fyrir íbúa að koma upp aðstöðu fyrir fjórðu tunnuna. |
Hentugasta umgengnin fyrir sorphirðuaðila. | Hentar verr fyrir þá sem losa sig við lítinn úrgang. |
Með valkosti 2 yrðu þrjár tunnur við hvert heimili í þéttbýli undir pappír og pappa, plast og blandaðan úrgang. Í tunnu undir blandaðan úrgang yrði hólf undir matarleifar.
Kostir | Gallar |
Sami fjöldi tunna héldist á lóðum og nú er. | Minni sveigjanleiki við ákvörðun á hirðutíðni. |
Sorpskýli undir þrjár tunnur myndu nýtast áfram. | Tíðari hirða eykur kostnað fyrir íbúa til framtíðar. |
Tíðari hirða á íláti undir matarleifar. | Um 15% minna magn kæmist í tunnu undir blandaðan úrgang. |
Hentar þeim sem losa sig við lítinn úrgang. | Hentar verr fyrir þá sem losa sig við mikinn úrgang. |
Um 15% minna magn kæmist í tunnu undir blandaðan úrgang. | Torveldar umgengni fyrir sorphirðuaðila – þarf að meðhöndla ílát sem geta verið óþrifleg og þung. |
Fljótlegt að innleiða. | Ef boðið verður upp á minni tunnu undir blandaðan úrgang passar ílátið ekki í slíka tunnu. |
Auðveldara að þrífa ílát undir matarleifar en tunnu s.s. vegna ólyktar. | Fremur lítill verðmunur á íláti undir matarleifar og tunnu. |
Vakni frekari spurningar eða athugasemdir er íbúum sveitarfélagsins velkomið að hafa samband við verkefnastjóra umhverfismála í síma 470-8007 eða í gegnum netfangið: stefan@hornafjordur.is
Tengill á könnunina https://www.betraisland.is/group/27083