Umhverfis Suðurland

0
1121

Umhverfis Suðurland hvetur sunnlensk fyrirtæki til þess að taka þátt í Alheimshreinsunardeginum.
Þann 15. september verður haldinn í fyrsta skipti Alheimshreinsunar-dagurinn sem leggur áherslu á að allir íbúar þessarar jarðar nýti daginn til þess að hreinsa sitt umhverfi, sjá nánar á heimasíðu Landverndar www.landvernd.is/sidur/alheimshreinsun-thann-15-september-2018.
Í tilefni þessa dags hvetur verkefnið Umhverfis Suðurland, sunnlensk fyrirtæki / stofnanir og starfsmenn þeirra til þess að taka þátt í viðburði sem gengur út á að fara í hreinsunarátak í og við sínar byggingar og/eða athafnasvæði þann 14. september nk.
Til þess að fylgjast með viðburðinum er hægt að skoða myllumerkið #umhverfissuðurland inn á síðu verk-efnisins www.umhverfissudurland.is og www.facebook.com/UmhverfisSudurland.

Plastlaus september

Samhliða Alheimshreinsunardeginum er í gangi verkefnið Plastlaus september, sem er árlegt árverkni átak og því er plast þema þess mánaðar. Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Hver Íslendingur skilur eftir sig um 40 kíló af umbúðarplasti á ári.
Umhverfis Suðurland vonast til þess að Sunnlendingar verði áberandi hluti af þessum átaksverkefnum með virkri þátttöku enda eitt af markmiðunum að Suðurland verði fremst í flokki landshlutanna þegar kemur að umhverfismálum og hreinu umhverfi.

SASS_logo_cmyk_STORT