

Það verður stór dagur hjá hornfirskum ungmennum í dag, laugardag. Tvö lið frá Grunnskóla Hornafjarðar, Berserkir og Fortíðarkubbar, keppa fyrir Íslands hönd í First Lego League í Grikklandi. Hægt verður að fylgjast með þjarkakeppninni í beinni útsendingu á YouTube-rás Eduact.
Á sama tíma stígur hljómsveitin Spírall á svið í Samfestingnum 2026, söngkeppni Samfés, sem sýnd verður beint á RÚV og hefst klukkan 14:00. Spírall er skipuð þeim Björgu Kristjánsdóttur, Björgu Sveinsdóttur, Bryndísi Björk Hólmarsdóttur, Bryndísi Jónu Valdimarsdóttur, Emilíu Ósk Jóhannsdóttur og Freyju Dís Tjörvadóttur. Þær flytja lagið Creep með Radiohead og eru númer 14 í röðinni.
Nánar má lesa um Legóhópinn og Spíral á eystrahorn.is.
Áfram Legó og áfram Spírall!



