Nú í upphafi sumars mun Hornafjörður enn á ný taka á móti mörgum nýjum andlitum. Sumir eru að koma aftur til vinnu en margir eru að stíga sín fyrstu skref í sveitarfélaginu – stað sem er langt frá því sem þeir kalla venjulega heimili sitt.

Auglýsing

Eitt eiga þau öll sameiginlegt: þau eru að stíga inn í nýtt umhverfi og leita eftir tengingu, leiðbeiningum og tilfinningu fyrir því að tilheyra samfélaginu.

Við höfum séð margar sögur þar sem stutt heimsókn breyttist í langdvöl. Eigin vegferð mín hófst einmitt þannig. Þess vegna er svo mikilvægt að hjálpa nýbúum að líða eins og heima hjá sér frá upphafi.

Til að styðja við inngildinguna og þátttöku í samfélaginu verður röð funda haldin í Gömlabúð. Markmið þeirra er að hjálpa þeim að setjast hér að, veita skýrar og hagnýtar upplýsingar til að auðvelda upphafið í sveitarfélaginu Hornafirði.

Á fundunum viljum við deila því hvar má finna nauðsynlega þjónustu, hvernig hægt er að taka þátt í menningarlífinu, fyrstu skrefunum í íslenskunámi og hvaða félagasamtök er hægt að ganga í. Við munum kynna dagatal yfir komandi viðburði og margt fleira, enda leggjum við ríka áherslu á sameiginlega aðlögun og að styrkja samfélagið okkar.

Við viljum líka brjóta þá mýtu að „hér sé ekkert að gera“.

Á síðustu þremur árum hef ég uppgötvað fjöldann allan af viðburðum og afþreyingu en maður þarf að vita hvar á að leita.

Við munum einnig búa til spurningalista (Q&A) byggðan á algengum spurningum sem verður aðgengilegur á netinu til að gera upphafið enn auðveldara.

Fyrsti fundurinn verður haldinn í 14. maí kl. 17:00 í Gömlabúð. 

Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.


English

Welcome to Hornafjörður

As summer begins, Hornafjörður will once again welcome many new faces. Some are returning for the season, while many others are taking their first steps in our municipality a place that may be far from what they usually call home.

They all share one thing in common: they are entering a new environment and looking for connection, guidance, and a sense of belonging.

We have seen many stories where a short visit turned into a long-term stay. My own journey began exactly that way. That is why it is so important to help newcomers feel at home from the very start.

Community Meetings at Gamlabúð

To support integration and community participation, a series of meetings will be held at Gamlabúð. The goal is to help newcomers settle in by providing clear, practical information to make their start in Hornafjörður as smooth as possible.

At these meetings, we will cover:

  • Essential Services: Where to find the help and resources you need.
  • Culture & Social Life: How to get involved in local events and organizations.
  • Language: Taking the first steps in learning Icelandic.
  • Activities: A calendar of upcoming events and a guide to local clubs.

We also want to debunk the myth that “there is nothing to do here.” Over the past three years, I have discovered a wealth of activities and events – you just have to know where to look.

We are going to develop a Q&A based on the questions raised during the meetings, which will be available online to make the transition even easier.


Event Details

  • Date: May 14th
  • Time: 17:00 (5:00 PM)
  • Location: Gamlabúð

We look forward to seeing you there and strengthening our community together!


Maciej Różański

Búsettur á Höfn í þrjú ár. Stofnandi hópsins Sea Lions Iceland. Sumarstarfsmaður hjá Menningarmiðstöðinni, meðlimur í fjölmenningarráði og Björgunarsveitinni Hornafirði.

Resident of Höfn for three years. Founder of “Sea Lions Iceland,” summer employee at the Cultural Center, member of the Multicultural Council, and member of the Hornafjörður Search and Rescue Team.

Tags: