First Lego League er alþjóðleg keppni sem nær til yfir 600.000 ungmenn í 110 löndum víða um heim. Tilgangur keppninnar er að bjóða ungu fólki að taka þátt í verkefnum sem skapa færni í vísindum og tækni, örva nýsköpun og byggja upp hæfileika á borð við sjálfstraust, samvinnu- og samskiptahæfni. Keppninni má skipta upp í nokkra áhersluþætti; forritun og hönnun, nýsköpunarverkefni, miðlun og liðsheild.

Auglýsing

Keppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 2005, að undanskildu árinu 2020, og hefur Grunnskóli Hornafjarðar tekið þátt frá upphafi.

Þema keppninnar árið 2025 voru fornminjar eða Unearthed. Grunnskóli Hornafjarðar átti 2 af 19 liðum í keppninni, en í þeim voru nemendur í 7. og 8. bekk skólans sem höfuð valið að vera í Legó-smiðju. Nítján nemendur skipuðu liðin tvö, Berserki og Fortíðakubba.

Lego hópurinn er stór og undirbýr sig fyrir mótið í Grikklandi í maí

Eftir mikla vinnu uppskáru liðin vel, en saman deildu liðin 1. sæti í vélmennakappleik, Berserkir lenti í 1. sæti í liðsheild og Fortíðarkubbar lentu í 3. sæti fyrir besta nýsköpunarverkefnið. Að lokum voru það svo Berserkir sem enduðu í 1. sæti keppninnar og Fortíðarkubbar í 2. sæti.

Þessi frábæri árangur skilaði þeim þátttökurétti í keppnum erlendis fyrir Íslands hönd, og hafa liðin nú staðið í ströngum undirbúningi fyrir alþjóðlegt mót  sem fram fer í Grikklandi dagana 8. – 10. maí næstkomandi.

Nemendurnir hafa ásamt foreldrum staðið í ströngu við að afla fjár fyrir ferðalaginu og viljum við þakka öllum þeim sem hafa stutt við bakið á hópnum síðustu vikur. Má þar helst nefna veglegan verkefnastyrk frá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Hópurinn ætlar að hafa opið hús í Heppuskóla miðvikudaginn 22. apríl kl. 17:00 þar sem þau munu kynna þjarkana sína og rannsóknarverkefnin fyrir áhugasömum.

Fyrir þá sem langar að styðja við krakkana látum við reikningsnúmer fylgja með hér að lokum: Kennitala 490283-0219 og reikningsnúmer 0133-15-13142.

Aðsend grein: Grunnskóli Hornafjarðar

Tags: