
Í nóvember síðastliðnum unnu liðin Berserkir og Fortíðarkubbar frá Grunnskóla Hornafjarðar sér rétt til þess að keppa fyrir Íslands hönd í alþjóðlegum First lego league keppnum þegar liðin lentu í fyrsta og öðru sæti í keppninni hér á Íslandi. Liðin tvö eru nú stödd á Korinthos á Grikklandi þar sem þau keppa í alþjóðlegri keppni á móti 54 liðum frá 54 löndum.
First Lego League er alþjóðleg keppni sem nær til yfir 600.000 ungmenna í 110 löndum víða um heim. Tilgangur keppninnar er að bjóða ungu fólki að taka þátt í verkefnum sem skapa færni í vísindum og tækni, örva nýsköpun og byggja upp hæfileika á borð við sjálfstraust, samvinnu- og samskiptahæfni. Keppninni má skipta upp í nokkra áherslu þætti; forritun og hönnun, nýsköpunarverkefni, miðlun, og liðsheild.
Krakkarnir hafa ekki slegið slöku við síðustu vikur og mánuði og hafa búið til rannsóknarverkefni, hannað og forritað vélmenni, ásamt því að búa til kynningarbás og kynningarefni.


Bæði liðin hafa nú kynnt rannsóknarverkefni sín fyrir dómurum og sýnt vélmennin sem þau hönnuðu. Þema keppninnar í ár eru fornminjar og með það að markmiði hönnuðu Berserkir kassa sem þau kalla Archeobox, en tilgangurinn með honum er að létta fornleifafræðingum lífið með því að geta skannað og greint fornminjar úti í feltinu. Hugmynd FortíðarKubba var lítill dróni sem getur kortlagt svæði sem fornleifafræðingar ná ekki til, svo sem jökulsprungur, hraunsprungur og fornminjar sem leynast neðansjávar.
Næst á dagskrá er vélmennakappleikur en hægt er að fylgjast með í beinu streymi hér:
https://www.youtube.com/@Eduact
Berserkir
- Run 1: laugardag kl. 14:00
- Run 2: laugardag kl. 15:30
- Run 3: sunnudag kl. 07:00
Fortíðar kubbar
- Run 1: laugardag kl. 14:15
- Run 2: laugardag kl. 15:45
- Run 3: sunnudag. kl. 07:15
Liðin vilja þakka öllum þeim sem hafa styrkt þau í gegnum allt þetta ferli, bæði í haust fyrir keppnina í Reykjavík og núna í vor fyrir þessa ferð. Stuðningur samfélagsins okkar er ómetanlegur í svona ferðum.
Aðsend grein
Steinunn Hödd Harðardóttir
Aðstoðarskólastjóri í Grunnskóla Hornafjarðar



