Skilaboð fundargesta af íbúafundi á Höfn

0
116

Á íbúafundi í Vöruhúsinu á Höfn þann 12. október sl. var Höfn í nútíð og framtíð til umræðu. Fundurinn var haldinn í tengslum við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins og hefur nú verið birt samantekt um skilaboð fundargesta á vefnum hornafjordur.is/adalskipulag.
Umræður á fundinum snerust um hvernig gera mætti Höfn að enn fallegri, náttúrulegri, aðgengilegri, skemmtilegri og öflugri bæ. Fjölmargar áhugaverðar ábendingar komu fram, s.s. um hvernig mætti fegra bæjarmyndina, bæta gatnakerfi, göturými og önnur almenningsrými. Einnig hvernig skipulag getur stutt við atvinnulíf og þjónustu og styrkt kjarna bæjarins. Þá var bent á ýmislegt sem snýr að náttúruvernd, loftslagsbreytingum og aðstöðu til útivistar.
Í samantektinni eru meginskilaboð fundargesta dregin saman bæði í texta og á meðfylgjandi korti en einnig er ítarlegt yfirlit yfir allar ábendingar og hugmyndir sem komu fram.
Hornafjarðarbær þakkar þátttakendum fyrir þeirra mikilvæga framlag og hvetur íbúa alls sveitarfélagsins til að fylgjast með framgangi endurskoðunar aðalskipulags á aðalskipulagsvefnum. Senda má inn hugmyndir og sjónarmið hvenær sem er á meðan nýtt aðalskipulag er í mótun. Þær sendist á netfangið adalskipulag@hornafjordur.is.
Íbúafundir um skipulag dreifbýlisins verða haldnir 27. og 28. nóvember nk.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri Hornafjarðar