Mynd: Þorsteinn Roy

Nýverið var ég í sumarfríi í hitabylgju við Miðjarðarhafið. Í hitanum varð manni ekki mikið úr verki svo ég lagðist í lestur. Fyrir valinu varð Kvíðakynslóðin eftir Jonathan Haidt. Þótt ég ætli ekki að skrifa bókmenntagagnrýni fangaði efnið mig og kom huganum á hreyfingu, enda var hitinn of mikill til líkamlegrar hreyfingar. Í grófum dráttum fjallar bókin um áhrif snjalltækja, internetsins og samfélagsmiðla á geðheilbrigði þeirra kynslóða sem hafa alist upp með þeim allt frá tilkomu IPhone á markaðinn árið 2007.

Auglýsing

Eftir lesturinn langaði mig að kanna hvernig við stöndum hér í Sveitarfélaginu Hornafirði. Því miður eru ekki til rannsóknir um líðan ungmenna allt aftur til ársins 2007, enda hefði ég ekki lagt í að vinna svo ítarlegan samanburð í þessari hitabylgju. Við höfum hins vegar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Grunnskóla Hornafjarðar á árunum 2023–2026.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna aukningu á samfélagsmiðlanotkun og neteinelti hjá yngri árgöngum, þar sem 69% nemenda í 5. bekk (samanborið við 43% árið 2023) nota samfélagsmiðla mjög eða frekar oft og 24% barna í 4.–5. bekk hafa orðið fyrir einelti á netinu. Samhliða þessu kemur fram aukning á andlegri vanlíðan og kvíða á elsta stigi grunnskólans. Í 10. bekk hefur hlutfall nemenda sem finna fyrir kvíða vikulega eða oftar tvöfaldast á milli áranna 2023 og 2026 (úr 22% í 50%).

Svefntruflanir og seinkun á háttatíma hafa einnig aukist, en 34% nemenda í 8.–10. bekk fara að sofa eftir miðnætti á skóladögum. Svefnvandi hefur aukist sérstaklega hjá drengjum í 8.–10. bekk (úr 12% í 23%) og stúlkum í 6.–7. bekk (úr 5% í 23%), á meðan hlutfall stúlkna í 8.–10. bekk með svefnvanda helst áfram mjög hátt (43%). Ánægjulegt er þó að sjá að svefnvandi hefur minnkað umtalsvert hjá drengjum í 6.–7. bekk, eða úr 38% í 6%.

Þótt ekki sé svo að skilja að hér sé allt í báli og brandi, enda er staðan hér yfirleitt sambærileg við landsmeðaltal, verður maður samt að spyrja sig hvað sé til ráða. Höfundur bókarinnar leggur til fjögur ný samfélagsviðmið, 1. enga snjallsíma fyrir 16 ára aldur, 2. enga samfélagsmiðla fyrir 16 ára aldur, 3. símalausa skóla og 4. aukið frelsi og frjálsan leik barna. Innleiðing símafrís í skólum er ágætis skref, en afmarkað verkefni skólasamfélagsins dugar þó skammt til að bæta andlega líðan eða bæta svefnvenjur. Til þess þarf heildstæða nálgun sem nær einnig til heimilis og frítíma barna.

Ég hvet foreldra til að sameinast um gerð bekkjarsáttmála, en leiðbeiningar má finna á www.sterkariutilifid.is. Sáttmálinn er hugsaður sem verkfæri til að samræma viðmið meðal foreldra varðandi til dæmis snjallsíma, skjátíma, samfélagsmiðla, svefn og símalausar samverustundir. Slíkur sáttmáli skapar einnig vettvang til að ræða stafræna hegðun, friðhelgi, myndbirtingar og áhrif samfélagsmiðla og áhrifavalda á sjálfsmynd barna.

Ég tel að Hornafjörður hafi ákveðið forskot, sterkt nærsamfélag, mikið frelsi, fjölmörg tækifæri til frjáls leiks og öflugt tómstunda- og íþróttastarf. Í gögnum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar má sjá augljósa verndandi þætti, nær allir nemendur í 6.–10. bekk segjast eiga góða vini og 79% barna í 6.–10. bekk æfa íþróttir reglulega. Markmiðið ætti því að snúa að því að nýta þessa verndandi þætti, takmarka tíma barnanna okkar fyrir framan skjáinn og um leið að skipta þeim tíma út fyrir eitthvað uppbyggilegra, bættar svefnvenjur, sterk vinatengsl, aukna samveru, útiveru og frjálsan leik. Til þess þarf sameiginlegt átak og samfélagssáttmála þar sem tekið er höndum saman um bætta líðan ungmenna í Hornafirði.

Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fjölskyldufræðingur og sviðsstjóri Velferðarsviðs

Tags: