Sýnishorn úr sýndarveruleikanum. Myndin er samsett

Ný jöklasýning, Glaciers of Höfn, var opnuð í húsnæði veitingastaðarins Heppu á Höfn 14. ágúst síðastliðinn. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, opnaði sýninguna formlega við athöfn þann dag. Sýningin hefur verið um tvö ár í þróun, og sameinar fræðslu, sýndarveruleika og kvikmyndina After Ice. Eystrahorn fékk þá Þorgrím Tjörva Halldórsson og Hilmar Stefánsson, sem standa að sýningunni, til að svara nokkrum spurningum um tilurð hennar, þróunarferlið og fyrstu viðbrögð gesta. 

Auglýsing

Hugmyndin að sýningunni þróaðist þó í nokkrum skrefum og byrjaði raunar á allt öðrum stað. Upphaflega voru þeir Hilmar og Elvar Unnsteinsson að velta því fyrir sér hvort hægt væri að nýta gamalt frystirými í húsinu undir ísbar. Þar áttu að vera útskornir skúlptúrar úr jökulís og jafnvel hægt að fá ískaldan drykk í viðeigandi umhverfi.

Hugmyndin reyndist þó ekki eins einföld í framkvæmd og virtist í fyrstu. Kostnaðurinn við að halda frystikerfum hússins gangandi varð til þess að horfið var frá henni og farið að leita annarra leiða til að nýta rýmið.

Þá kviknaði hugmynd um einhvers konar íshellaupplifun með myndvörpum. Þorvarður Árnason kom inn í samtalið, en Hilmar og Elvar höfðu jafnframt mikinn áhuga á kvikmyndinni After Ice, sem Þorvarður framleiddi ásamt Kieran Baxter og sýnir breytingar á jöklum í nágrenni Hornafjarðar.

Þorvarður fékk Kieran með í verkefnið og þar fór boltinn fyrir alvöru að rúlla. Hugmyndin þróaðist yfir í sýndarveruleikaupplifun og tók við um tveggja ára þróunarferli. Kieran Baxter leiddi hönnun og þróun VR-hlutans ásamt Ástu Olgu Magnúsdóttur og Hans Welling hjá Into the Blue.

„Það var í raun ekki fyrr en í ársbyrjun 2026 sem við sáum öll myndskeiðin raðast saman í eina heild. Þegar búið var að tengja þau saman, bæta við hljóði og lesa textann yfir varð okkur eiginlega fyrst ljóst hvað hafði orðið til,“ segja þeir.

Þróun og uppbygging sýningarinnar var að mestu í höndum Hilmars Stefánssonar. Konstantin Allen Vlasis kom að hljóðheimi hennar og útvegaði meðal annars upptökur úr jöklum, auk þess sem Þorvarður Árnason veitti ráðgjöf í gegnum ferlið. Við gerð fræðsluhlutans var meðal annars stuðst við efni úr verkefninu Hörfandi jöklar frá Vatnajökulsþjóðgarði.

Að gera fræðsluna að upplifun

Ein helsta áskorunin var að finna jafnvægi milli fræðslu og upplifunar.

Mikið efni er til um íslenska jökla en það sem höfðar til vísindamanna og sérfræðinga er ekki endilega það sem nær til almennings. Markmiðið var því að miðla fróðleiknum á aðgengilegan hátt án þess að missa innihaldið.

Þeir segja að auðvitað fylgi verkefnum af þessari stærðargráðu ýmsar fjárhagslegar áskoranir. „Töluverður kostnaður felst bæði í þróun sýningarinnar og kaupum á tæknibúnaði og við höfum að mörgu leyti þurft að renna blint í sjóinn.“

Næsta verkefni er að byggja upp orðspor Glaciers of Höfn og ná þeim gestafjölda sem þarf til þess að sýningin standi undir sér. Þeir gera ráð fyrir að það geti tekið allt að þrjú ár að byggja starfsemina upp þannig að hún verði sjálfbær til framtíðar.

Gestir bæði tárast og finna fyrir lofthræðslu

Fyrstu dagarnir eftir opnun hafa verið fremur rólegir, enda kynning á sýningunni rétt að hefjast, en viðbrögð gesta hafa verið góð.

Sumir hafa sagt að ákveðin myndskeið í sýndarveruleikanum hafi hreinlega fengið þá til að tárast. Aðrir hafa þurft að setjast niður þegar lofthræðslan lét á sér kræla.

Í VR-upplifuninni fylgir gesturinn hrafni yfir jöklana og upplifir þannig hæð, stærð og landslagið með öðrum hætti en annars væri mögulegt.

Sýningin er jafnframt hugsuð sem heilsársafþreying. Þeir fengu forsmekk af því í slæmu veðri nýlega þegar aðsókn margfaldaðist. Einn gestur sagði þeim jafnframt að eftir heimsóknina hefði hann ákveðið að bóka sér jöklaferð.

„Ef sýningin nær að fræða fólk um jöklana og á sama tíma hvetja það til að fara út og upplifa náttúruna sjálfa, þá erum við að gera eitthvað rétt.“

Jöklasýning á einfaldlega heima á Höfn

Glaciers of Höfn er hugsuð sem varanleg sýning og þegar eru uppi hugmyndir um hvernig hægt verði að þróa hana áfram.

Aðstandendur hennar sjá einnig tækifæri í fræðsluhlutverki sýningarinnar og hafa þegar fengið fyrirspurnir frá innlendum og erlendum skólahópum. Þá hafa átt sér stað samtöl við Grunnskóla Hornafjarðar og áhugi er á frekara samstarfi við skóla og sveitarfélagið.

Margir minnast enn gömlu jöklasýningarinnar á Höfn og að þeirra mati á jöklasýning einfaldlega heima á svæðinu.

„Jöklarnir eru hluti af sögu okkar, umhverfi okkar og sjálfsmynd. Jökullinn er Hornfirðinga.“ 

Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Ritstjóri

Tags: