


Ég er að lesa, eða reyndar hlusta, á Kraftinn í núinu eftir Eckhart Tolle. Ekki í fyrsta skipti, örugglega í þriðja. Bókin er ekki alltaf svo auðskilin og sumar pælingarnar finnst manni ansi djúpar, allavega við fyrstu, aðra og jafnvel þriðju hlustun. En einn helsti boðskapur bókarinnar er einfaldur: Það eina sem við í raun og veru eigum er NÚNA.
Það er svo auðvelt að festast í fortíðinni og framtíðinni. Hafa áhyggjur, bíða eftir einhverju eða sjá eftir einhverju. Allt sem hefur gerst gerðist einhvern tímann núna og allt sem á eftir að gerast mun gerast núna þegar að því kemur. En á meðan við veltum okkur upp úr því sem var og því sem gæti orðið, líður núið fram hjá okkur.
En núið er alls ekki svo slæmt.
Haustið er farið að láta á sér kræla, norðurljósin byrjuð að sýna sig og náttúran að verða litríkari. Að við tölum nú ekki um sveppina og berin sem eru upp á sitt besta! Núna er rútínan að fara á fullt og samfélagið fer aftur af stað eftir sumarið. Skólarnir, íþróttirnar, kórarnir, félagsstarfið og alls konar fleira gott sem við getum notið.
Við þurfum ekki alltaf að bíða eftir betri tíma.
Núna er tíminn.
Njótum hans eins og við getum. Verum saman, mætum og höfum gaman.
Núna.



