Á Höfn hefur áhugi á matvælaframleiðslu og náttúrulegum hráefnum orðið að litlu tilraunaverkefni í svepparækt. Verkefnið kallast Mýsildalur. Hugmyndin er að kanna hvernig hægt sé að rækta ferska matsveppi á Höfn með þeim aðstæðum, hráefnum og búnaði sem nærumhverfið býður upp á.

Auglýsing

Fyrstu skrefin voru einföld: plastfötur sem annars hefðu farið í endurvinnslu, heimagerð ræktunaraðstaða og óteljandi spurningar um af hverju sumt virkaði og annað ekki. Hver tilraun hefur vakið nýjar spurningar og aukið skilning minn á möguleikum svepparæktunar á Höfn.

Uppskeran hefur hingað til verið góð og viðbrögð þeirra sem hafa smakkað sveppina afar jákvæð. Mýsildalur er þó enn fyrst og fremst tilraunaverkefni.

Hornfirskar aðstæður

Stór hluti verkefnisins felst í að prófa hvaða aðferðir henta við hornfirskar aðstæður.

Smæð samfélagsins og staðsetningin hafa bæði reynst áskorun og uppspretta hugmynda. Í stað þess að kaupa allan búnað tilbúinn og flytja öll hráefni að hef ég aðlagað búnað og aðferðir að því sem er í boði hverju sinni.

Tilraunir með lífræn hráefni og hliðarafurðir annarrar framleiðslu hafa vakið áhugaverðar spurningar. Með hverri tilraun kemur eitthvað nýtt í ljós, líka þegar niðurstaðan er ekki sú sem ég vonaðist eftir.

Uppsprettan og lærdómurinn

Forvitnin kviknaði með ræktunarfötu frá Emmson sveppum, þar sem ostrusveppir voru ræktaðir úr notuðum kaffikorgi. Það vakti spurninguna: væri hægt að nýta hornfirskar hliðarafurðir á svipaðan hátt?

Stuttu síðar fór ég í nám hjá GroCycle um lágtækniræktun ostrusveppa og sæfða ræktun sælkerasveppa. Það varð upphafið að sambandi Mýsildals og GroCycle. Næstu átta vikur mun ég vinna beint með þeim að stefnumótun verkefnisins. Ég hef einnig verið í sambandi við og unnið með öðrum svepparæktendum á Íslandi. Það hefur verið dýrmætt að geta borið saman reynslu og hugmyndir.

Hvað kemur næst?

Tíminn mun leiða í ljós hvert þróunarverkefni Mýsildals stefnir næst. Eitt er þó víst: forvitni og aðlögun að nærumhverfinu verða leiðarljós Mýsildals.

Þau sem vilja lesa meira um verkefnið geta heimsótt mysildalur.is. Þar eru upplýsingar um sveppina sem hafa verið í ræktun, fróðleikur um ferlið og myndir af því sem hefur tekist vel og því sem hefur farið úrskeiðis.

Agnar Jökull Imsland Arason
Mýsildalur

Tags: