
Öræfahlaupið hefur farið fram í Skaftafelli undanfarin tvö ár og þar hlaupa þátttakendur um stórbrotið landslag, meðal annars á leiðinni að Kristínartindum. Óhætt er að segja að viðmælandi Eystrahorns, Þorsteinn Roy, einn af aðstandendum hlaupsins, þekki fjöllin og stígana í Öræfunum vel og hefur sjálfur hlaupið víða um svæðið.
Við ræddum við Þorstein um hvernig hugmyndin að hlaupinu kviknaði, framkvæmdina, þátt heimafólks og framtíð Öræfahlaupsins.
Hvernig kviknaði hugmyndin að Öræfahlaupinu?
Þessi hugmynd hafði lengi blundað í kollinum á mér. Það var svo ekki fyrr en vinur minn, Hlynur Guðmunds, sem er mikill hlaupari og reyndur hlaupahaldari, hljóp upp að Kristínartindum þegar hann var staddur í Skaftafelli og kom til mín með hugmyndina að halda hlaup á þessum slóðum, að við ákváðum að láta hugmyndina verða að veruleika.
Teymið sem heldur Öræfahlaupið samanstendur af mér, Hlyni og Ósk Gunnarsdóttur ásamt okkar frábæru fjölskyldum.
Hvernig er fyrir þig að halda hlaupið á heimaslóðum?
Það er ótrúlega gaman að halda hlaup á mínum heimaslóðum og fá að sýna fólki þessa náttúrufegurð sem Öræfin hafa upp á að bjóða. Það er svo mikil kyrrð og dramatík í landslaginu á sama tíma. Mér þykir einnig ótrúlega vænt um hvað heimafólk tekur vel í þennan viðburð og mörg fyrirtæki úr sveitinni heima og víðar hafa sýnt okkur ómetanlegan stuðning sem hjálpar mikið við framkvæmdina.
Hvernig varð hlaupaleiðin til?
Við erum svo heppin að eiga í góðu samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð, sem viðheldur stígum þjóðgarðsins afar vel. Það var því lítið mál að teikna upp leið sem okkur þótti ákjósanleg. Fyrsta árið var hún örlítið öðruvísi en eftir ábendingu frá Ármanni í Víðihlíð, sem er mikill hlaupari, ákváðum við að breyta henni til hins betra.
Hlaupið er alvöru utanvegahlaup með góðri blöndu af frábærum stígum, malarvegi, tæknilegu brölti og hröðu niðurhlaupi á mjóum stígum.
Hvernig gekk hlaupið í ár?
Það gekk ótrúlega vel, veðrið var frábært og við vorum alsæl með framkvæmdina. Við viljum færa öllum sem lögðu hönd á plóg við framkvæmdina kærar þakkir.
Hvernig hafa viðbrögðin verið þessi fyrstu tvö ár?
Viðbrögðin hafa verið afskaplega góð þessi fyrstu tvö ár. Fólk er að sjálfsögðu hrifið af náttúrunni og orkunni á svæðinu, enda ekki annað hægt. Svo sló barnapössunin rækilega í gegn síðasta sumar.
Hversu stóran þátt á heimafólk í framkvæmdinni?
Heimafólk á risastóran þátt í framkvæmdinni. Það er svo fallegt hvað fólk er boðið og búið að hjálpa til við allt. Sem dæmi settum við upp risastórt tjald sem við fengum lánað frá Ungmennafélagi Öræfa. Ég hugsa að á tímabili hafi verið um 20 manns að hjálpa okkur við að setja það upp.
Eins hafa fyrirtækin á svæðinu sýnt okkur ómældan stuðning við hlaupið, bæði með því að útvega verðlaun og vinninga, hjálpa til við gistingu og gera upplifun allra sem koma til okkar enn betri. Við leggjum mikið upp úr því að viðburðurinn geti stutt við svæðið en taki ekki frá því.






Öræfahlaupið, mynd úr safni Þorsteins
Hvað er mest krefjandi við að halda hlaup í Skaftafelli?
Það er ekkert mjög krefjandi að halda hlaup í Skaftafelli. Öll aðstaða er frábær, stígarnir stórkostlegir, náttúran verður vart fallegri og svo eru Öræfingar alveg einstaklega hjálplegir.
Svo má ekki gleyma því að teymið sem heldur hlaupið er reynslumikið, bæði í íþróttinni og viðburðahaldi. Þetta er blanda sem getur ekki klikkað.
Hvernig sérðu Öræfahlaupið þróast?
Við viljum gera betur á hverju ári og halda áfram að stækka viðburðinn, en í réttum skrefum. Fyrsta árið vildum við bara halda hlaupið og ekkert meira, en gera það mjög vel. Það sem skiptir mestu máli þegar haldið er hlaup er að brautarmerkingar og tímatökubúnaður séu í lagi. Allt hitt er svo til þess að bæta upplifun keppenda og aðstandenda.
Í ár ákváðum við að gera aðeins meira. Við vildum að fjölskyldustemningin í Skaftafelli myndi smitast inn í viðburðinn. Úr varð helgardagskrá fyrir alla fjölskylduna, allt frá krakkaleikum á föstudagskvöldinu yfir í uppistand með Sögu Garðars á laugardagskvöldinu eftir hlaupið sjálft. Einnig buðum við upp á barnapössun meðan á hlaupinu stóð, svo báðir foreldrar gætu tekið þátt og til að létta undir með þeim keppendum sem höfðu ekki pössun.
Við ætlum klárlega að byggja ofan á þessa flottu helgi og gera sannkallaða fjölskylduhátíð í lok júní í Öræfunum næsta sumar. Við höfum einnig bætt við styttri vegalengd, um 12 km, til þess að höfða til fleiri hlaupara. Í framtíðinni langar okkur svo að bæta við enn lengri vegalengd sem er nú þegar komin á teikniborðið.
Við sjáum það þó sem framtíðarverkefni og ætlum ekki að stækka of hratt í einu, bara í réttum skrefum. Viðburðurinn er og mun alltaf vera fyrir hlauparana og fjölskyldurnar sem mæta á svæðið og taka þátt.



Öræfahlaupið, mynd úr safni Þorsteins
Þú heldur líka úti hlaðvarpinu Út að hlaupa, segðu okkur aðeins frá því
Ég og góðvinur minn, Marteinn Urbancic, höldum úti hlaðvarpinu Út að hlaupa, þar sem við ræðum mestmegnis um hlaup, gerum upp keppnir, komum með góð ráð fyrir hlustendur og tökum viðtöl við allskonar fólk. Við höfum verið í loftinu í þrjú ár og reynum að taka upp einn þátt í viku. Þetta er ótrúlega skemmtileg aukavinna og gaman að finna fyrir miklum áhuga og hlustun.
Hvað viltu segja við Hornfirðinga sem eru að hugsa um að taka þátt í Öræfahlaupinu á næsta ári?
Við viljum að sjálfsögðu fá sem flesta Hornfirðinga á svæðið. Fyrstu tvö árin höfum við séð mörg andlit að austan og vonandi mun þeim fjölga enn meira á komandi árum. Því miður þurfa Hornfirðingar að ferðast töluvert til að taka þátt í flestum keppnishlaupum sumarsins og því um að gera að nýta tækifærið og næla á sig keppnisnúmerinu þegar hlaupaviðburður er haldinn innan sýslunnar.
Ég hvet einnig fleiri til að skoða það að halda utanvegahlaup í þessum frábæru fjöllum sem við eigum í Austur-Skaftafellssýslu. Möguleikarnir eru endalausir!




