
Nýlega heimsótti starfsmaður Náttúrustofu Suðausturlands nemendur í Grunnskólanum í Hofgarði og hélt þar náttúrufræðikennslu. Krakkarnir fengu að kynnast starfi náttúrustofunnar og prófa ýmsar aðferðir sem notaðar eru við náttúrurannsóknir.
Dagurinn hófst á stuttri kynningu á starfi Náttúrustofu Suðausturlands og þeim fjölbreyttu verkefnum sem sérfræðingar stofunnar sinna. Meðal annars var sagt frá rannsóknum sumarsins á fuglum og gróðri og rætt um líffræðilega fjölbreytni og hvers vegna mikilvægt er að fylgjast með breytingum í náttúrunni.
Að kynningu lokinni fóru nemendur út og prófuðu sjálf einfaldar aðferðir sem notaðar eru við rannsóknir og vöktun. Í gróðurverkefni var lagður út mælireitur og skoðað hvaða plöntur fundust innan hans og hvaða tegundir voru mest áberandi. Verkefnið gaf tilefni til að ræða hvernig gróður getur verið ólíkur milli svæða og hvaða þættir geta haft áhrif á tegundasamsetningu.



Einnig var farið í verkefni tengt fuglarannsóknum. Verkefnið var sett upp með hliðsjón af rannsóknum Náttúrustofu Suðausturlands á skúmum, þar sem meðal annars eru hreiður og egg skoðuð og mæld á vettvangi. Blöðrur voru notaðar til að tákna fuglaegg svo nemendur gætu prófað einfalda útgáfu af sambærilegri athugun og rætt hvað getur haft áhrif á varpárangur og afkomu fugla.
Alls tóku sjö nemendur þátt í deginum og sýndu þau verkefnunum mikinn áhuga. Það var gaman að sjá hvernig sumir tengdust sérstaklega gróðurrannsóknunum en aðrir fuglaverkefninu. Nemendurnir unnu saman að verkefnablöðum, notuðu mælitæki, skráðu athuganir og veltu fyrir sér hvað gæti verið að verki í náttúrunni og haft áhrif á gróðurfar og fuglalíf.
Markmiðið með deginum var að gefa nemendum innsýn í starf náttúrufræðinga og leyfa þeim sjálfum að prófa að skoða, mæla og skrá náttúruna í nærumhverfinu.
Við hjá Náttúrustofu Suðausturlands þökkum nemendum og starfsfólki Grunnskólans í Hofgarði kærlega fyrir skemmtilegan og áhugasaman dag og vonum að við höfum kveikt enn meiri forvitni um náttúruna í nærumhverfinu.



