Mynd frá framkvæmdum árið 2024. Mynd: Vegagerðin

Miðvikudaginn 24. júní eru tímamót í samgöngusögu Hornafjarðar þegar nýr kafli í Hringveginum um Hornafjörð er formlega opnaður. Fáar framkvæmdir hafa verið jafn lengi í umræðunni hér heima og nýi vegurinn, enda um að ræða breytingu sem hefur áhrif á daglegt líf margra, ekki síst íbúa á Mýrum, Suðursveit og í Öræfum sem og þeirra þeirra sem sækja vinnu og þjónustu á milli svæða.

Með nýja veginum styttist Hringvegurinn um 12 km og leiðin til Hafnar um 14,6 km. Lagðir hafa verið tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, auk tengivega og hliðarvega, og byggðar fjórar nýjar brýr yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót, Hoffellsá og Bergá. Einnig hefur verið gert hringtorg við Hafnarveg og áningarstaður við Brunnhól.

Aðdragandinn hefur verið langur. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar voru fyrstu áætlanir lagðar fram árið 2004, en eins og margir muna hófst umræðan hér heima nokkru fyrr. Framkvæmdin hefur í gegnum tíðina verið mikið rædd, meðal annars vegna leiðarvals, umhverfisáhrifa og kostnaðar. Fyrsti áfangi var boðinn út árið 2017 og fólst í gerð um 5 km langrar vegfyllingar. Meginframkvæmdin var síðan boðin út og samið við Ístak sumarið 2022. Framkvæmdir hófust þá um haustið. Með opnun vegarins fækkar einbreiðum brúm á Hringveginum um þrjár.

Einhverjir munu eflaust sakna hossubrúarinnar svokölluðu yfir Hornafjarðarfljót. En hver veit nema það verði í staðinn vinsæll sunnudagsrúntur að aka gamla veginn og rifja upp fyrri tíma.

Kvennakór Hornafjarðar syngur við vígslu vegarins, en kórinn vakti athygli árið 2020 þegar hann söng á öllum einbreiðum brúm í Austur-Skaftafellssýslu.

Vígslan fer fram á nýju brúnni yfir Hornafjarðarfljót klukkan 15:00, miðvikudaginn 24. júní. Að henni lokinni verður boðið til kaffisamsætis í félagsheimilinu Holti á Mýrum þar sem öll eru velkomin.

– GÁS

Tags: