Humarhátíðarnefndin í ár er skipuð níu öflugum einstaklingum, þar af nokkrum sem hafa staðið vaktina síðustu ár og nokkrum nýjum andlitum. Saman mynda þau hópinn sem heldur utan um undirbúning hátíðarinnar og vinnur að því að skapa skemmtilega dagskrá fyrir heimafólk og gesti.
Nefndarfólk segir starfið bæði krefjandi og gefandi. Það skemmtilegasta sé að fá að vera hluti af góðu teymi, vinna með frábæru fólki og taka þátt í að móta viðburð sem skiptir samfélagið miklu máli. Þar fái ólíkir styrkleikar að njóta sín, hvort sem það er í skipulagi, samskiptum, fjármögnun, dagskrárgerð, auglýsingum eða samfélagsmiðlum.
Það sem kemur mörgum á óvart er hversu mikil vinna liggur að baki hátíð sem þessari. Margt þarf að ganga upp áður en gestir mæta á svæðið og fjölmörg smáatriði þarf að leysa áður en hátíðin getur hafist. Það þarf að huga að kostnaði, styrkjum, leyfum, kynningu, viðveru á hátíðinni og öllum litlu hlutunum sem flestir hátíðargestir taka kannski aldrei eftir.

Nefndarfólk hlakkar til að njóta hátíðarinnar með öðrum, hvort sem það er á tónleikum, uppistandi, balli, í súpurölti, við matarvagnana eða einfaldlega í góðri stemningu með íbúum og gestum.
Um leið vill nefndin hvetja fólk til að íhuga að bjóða sig fram í Humarhátíðarnefnd á næsta ári. Starfið er skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi, en hátíðin verður aðeins til vegna þess að fólk er tilbúið að leggja hönd á plóg. Það skiptir máli að fá inn nýjar hugmyndir, ólíka reynslu og fólk sem vill taka þátt í að halda þessari mikilvægu hátíð lifandi.
Humarhátíð er hátíð okkar allra, en hún verður ekki til án fólksins sem stendur á bak við hana.
– GÁS



