Minigolfvöllur vígður

0
1542
Tveir ánægði smiðir

Síðastliðinn föstudag 10. júlí kom saman til smá athafnar fólkið sem hefur haft veg og vanda að Minigolfverkefninu sem er samstarfsverkefni Félags eldri Hornfirðinga og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Var komið saman inn við Minigolfssvæðið milli Ekru og Vesturbrautar og farið yfir verkefnið í töluðu máli rakin saga þess og framkvæmda. Formaður FeH (Félags eldri Hornfirðinga) Guðbjörg Sigurðardóttir, Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður Bæjarráðs Hornafjarðar og Haukur H. Þorvaldsson umsjónarmaður verkefnisins af hálfu FeH tóku til máls. Hugmyndin af minigolfi kviknaði á stjórnarfundi FeH í febrúar 2019. Leitaði FeH eftir styrk frá sveitarfélaginu um smíðina og að sveitarfélagið tæki að sér að útbúa svæði fyrir minigolfið. Var því vel tekið og árangurinn má líta á svæðinu. Kærar þakkir félagar og verðandi félagar. Í þetta skipti voru þrjár brautir teknar í notkun en pláss er fyrir tvær brautir í viðbót á svæðinu. Eftir er að ræða framkvæmd og fjármögnun þeirra milli stjórnar FeH og Sveitarfélagsins.

Upphafshöggin slegin

Við smíði brautanna naut FeH einstakrar lipurðar Valgeirs Jónssonar og Skinneyjar/Þinganess með afnot af aðstöðu í Lönguvitleysu, og flutnings brautanna, eins Kalla Guðna sem hífði brautirnar á saltvagninn og kom þeim fyrir á svæðinu. Uppbygging og frágangur svæðisins er bæjarstarfsmönnum til mikils sóma sem og allt samstarf milli FeH og þeirra. HÚRRA ! Í lok athafnar slóu svo Ásgerður-Guðbjörg og Kristján Guðna vígsluhögginn og fólk fékk sér kaffisopa og pönsur í boði stjórnar FeH. Minigolfsvæðið er nú komið í eigu og umsjá sveitarfélagsins og hefur nú verðið opnað íbúum sveitarfélagsins og gestum. Er það hér auglýst í Eystrahorni, líka á facebooksíðu Félags eldri Hornfirðinga og heimasíðu sveitarfélgsins. Endilega berið virðingu fyrir brautunum og svæðinu. Verum stolt af því ! Þetta verður góð viðbót við afþeyingamöguleika í sveitarfélaginu okkar. Er ekki gott að búa á Hornafirði ?

Félag eldri Hornfirðinga