Félagsmót Hornfirðings

0
1118
Mynd úr myndasafni

Félagsmót Hestamannafélagsins Hornfirðings var haldið á félagssvæði þess að Fornustekkum dagana 20.-21. júní. Mótið tókst vel og voru skráningar 68 samanborið við 33 skráningar í fyrra og var sérstaklega gaman að sjá bæði hvað margir voru komnir annars staðar frá og að skráningar í yngri flokkum voru 15 samanborið við eina frá því í fyrra.
Á laugardeginum var riðin forkeppni, þar sem einn er inná í einu og hefur þrjá hringi til þess að setja setja saman sýningu eftir viðeigandi keppnis­fyrirkomulagi. Eftir fyrri keppnisdag hittust dómarar, keppendur og allir þeir sem vildu í félagsheimilinu Stekkhól þar sem borin var fram frábær kjötsúpa í boði Hestamannafélagsins. Kvöldinu lauk svo með skemmtilegri Skógeyjarferð.

Á sunnudeginum voru riðin úrslit, þar sem að efstu hestar úr forkeppni öttu kappi þar sem sáust mörg mögnuð tilþrif og urðu úrslitin eftirfarandi:

A flokkur- Gæðingaflokkur 1

  1. Glæsir frá Lækjarbrekku 2 / Friðrik Reynisson 8,61
  2. Þytur frá Litla-Hofi / Hilmar Þór Sigurjónsson 8,48
  3. Matthildur frá Stormi / Einar Ben Þorsteinsson 8,45
  4. Gimsteinn frá Víðinesi 1 / Anja-Kaarina Susanna Siipola 8,02
  5. Marín frá Lækjarbrekku 2 / Hlynur Guðmundsson 0,00

B Flokkur- Gæðingaflokkur 1

  1. Tromma frá Höfn / Hlynur Guðmundsson 8,90
  2. Steinálfur frá Horni I / Ómar Ingi Ómarsson 8,48
  3. Lukka frá Bjarnanesi / Olgeir K. Ólafsson 8,39
  4. Perla frá Litla-Hofi / Katrín Líf Sigurðardóttir 8,19
  5. Geisli frá Miðskeri / Eydís Sigurborg Benediktsdóttir 8,02

Barnaflokkur

  1. Friðrik Snær Friðriksson / Jörundur frá Eystra-Fróðholti 8,38
  2. Elín Ósk Óskarsdóttir / Brák frá Lækjarbrekku 8,08
  3. Ída Mekkín Hlynsdóttir / Ör frá Hlíðarbergi 8,08
  4. Edda Lind Einarsdóttir Hallbac / Kredía frá Útnyrðingsstöðum 7,93

Unglingaflokkur

  1. Lilja Dögg Ágústsdóttir / Vinur frá Bjarnanesi 8,23
  2. Eyvör Stella Þ. Guðmundsdóttir / Draupnir frá Álfhólum 6,97

A flokkur ungmenna

  1. Mathilde Marij Nijzingh / Sveindís frá Bjargi 7,75

B flokkur ungmenna

  1. Mathilde Larsen / Klerkur frá Bjarnanesi 8,55
  2. Ólafía Ragna Magnúsdóttir / Neisti frá Fornustekkum 8,13
  3. Mathilde Marij Nijzingh / Bjartur frá Horni 8,07

Flugskeið 100m P2

  1. Friðrik Reynisson / Sleipnir frá Hlíðarbergi 8,40 sek
  2. Friðrik Snær Friðriksson / Huginn frá Hlíðarbergi 9,30 sek
  3. Gunnar Bragi Þorsteinsson / Logi frá Brekku, Fljótsdal 9,86 sek
  4. Þeba Björt Karlsdóttir / Gjöf frá Múla 1 10,70 sek

Gæðingatölt 17 ára og yngri

  1. Lilja Dögg Ágústsdóttir / Vinur frá Bjarnanesi 8,30
  2. Friðrik Snær Friðriksson / Jörundur frá Eystra-Fróðholti 8,26

Gæðingatölt minna vanir

  1. Magnús Skúlason / Stjarna frá Haga 8,26
  2. Jóna Stína Bjarnadóttir / Gréta frá Fornustekkum 8,23
  3. Mathilde marij Nijzingh / Bjartur frá Horni I 8,13
  4. Geir Þorsteinsson / Dreyri frá Ölversholti 8,08
  5. Marie Kristin / Hellir frá Horni I 7,79

Gæðingatölt meira vanir

  1. Hlynur Guðmundsson / Tromma frá Höfn 8,70
  2. Kristján Björgvinsson / Snúður frá Reyðará 8,28
  3. Hallgrímur Anton Frímannsson / Aríel frá Teigabóli 8,27
  4. Jón Birkir Finnsson / Aska frá Reyðará 8,05
  5. Helgi Vigfús Valgeirsson / Sókrates frá Árnanesi 7,9

Þetta var virkilega skemmtileg helgi og þökkum öllum sem komu að mótinu og vonumst eftir því að sjá sem flesta með okkur í vetur.

Kveðja
Stjórn Hestamannafélagsins