Lokaverkefni í sjónlist

0
745
Karen Ása og Daníel Snær við verkin sín

Þann 17. febrúar síðastliðinn var sett upp sýning tveggja nemenda við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu í sjónlist en verkin voru unnin á síðastliðinni haustönn. Ekki hefur verið stund eða staður til að sýna þessi verk fyrr en núna og verða verkin til sýnis í anddyri bókasafnsins í Menningarmiðstöð Hornafjarðar í Nýheimum
Daníel Snær Garðarsson sýnir ljósmyndir af teikniæfingum en hann vann að mestu út frá þrívíðum formum líkamans og voru honum grísk goð einkar hugleikin.
Karen Ása Benediktsdóttir sýnir stíllistaverkefni þar sem hún endurhannaði fatnað og skapaði um leið heildstætt útlit þar sem m.a. var hugað að förðun og hárgreiðslu. Sjö einstaklingar tóku að sér að sitja fyrir. Dagmar Lilja Óskarsdóttir farðaði í þessu verkefni og Karen Ása tók sjálf myndirnar.
Við hvetjum alla til að líta við í Menningarmiðstöðunni og skoða skemmtileg verkefni.