Ráðgjöf í tengslum við Uppbyggingarsjóð Suðurlands

0
470

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) hefur á síðustu árum gert samstarfssamninga við þekkingarstofnanir víða um Suðurland og búa því yfir öflugu teymi ráðgjafa og verkefnastjóra vítt og breitt um landshlutann. Eru ráðgjafar m.a. með aðsetur á Selfossi, Hvolsvelli, Vík, Eyjum, Kirkjubæjarklaustri og Höfn. Hluti af þjónustu SASS er að veita ráðgjafaþjónustu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála og veitir m.a. ráðgjöf við mótun verkefna og eftirfylgni með Uppbyggingarsjóði Suðurlands og er þjónustan endurgjaldslaus.
Nýlega hefur ráðgjafavefur SASS, www.sass.is/radgjof, verið endurnýjaður að miklu leyti og þá sérstaklega hvað varðar stoðefni og leiðbeiningar við gerð styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð. Þar má einnig finna upplýsingar og leiðbeiningar í tengslum við aðra fjármögnun, menningarmál og markaðsmál.
Þjónusta SASS felur einnig í sér handleiðslu og leiðbeiningar um annað stoðkerfi atvinnulífs og menningar. Því hvetjum við alla þá sem búa yfir verkefnahugmyndum á þessum sviðum að eiga samtal við ráðgjafa á vegum SASS og leita í sameiningu að þeim leiðum sem skila verkefnum sem bestum árangri.
Á heimasíðu SASS má finna allar upplýsingar um ráðgjafaþjónustuna og ráðgjafa sem starfa á vegum SASS. Þar er einnig hægt að panta tíma í ráðgjöf, hvort sem er á stað-, fjarfundi eða í gegnum síma.
Einnig má hafa beint samband við Guðrúnu Ásdísi Sturlaugsdóttur sem starfar sem ráðgjafi og verkefnisstjóri á vegum SASS í Nýheimum þekkingarsetri.
Að lokum viljum við vekja athygli á að umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð Suðurlands rennur út þriðjudaginn 2. mars klukkan 16:00, sjá nánar:
www.sass.is/uppbyggingarsjodur.