Listasýning í Svavarssafni

0
391
Bjarki Bragason

Laugardaginn 15. maí næstkomandi opnar sýning Bjarka Bragasonar sem ber heitið „Samtímis – Synchronous“ í Svavarssafni kl. 17:00. Sýningin er hluti af sýningarröð Listasafns ASÍ, þar sem einkasýningar valinna listamanna eru skipulagðar á tveimur stöðum á landinu. Staðirnir sem urðu fyrir valinu fyrir sýningu Bjarka eru Höfn í Hornafirði og Kópavogur. Viðfangsefni sýninganna tengjast báðum þessum stöðum nánum böndum, annars vegar rannsóknum hans á Breiðamerkurjökli og hins vegar garði ömmu hans og afa við Kópavogsbraut í Kópavogi. Fyrri sýningin verður á Höfn í Hornafirði eins og fyrr segir og vonir standa til að sýningin í Kópavogi geti orðið seinna á árinu.
Bjarki er þriðji listamaðurinn sem velst til þátttöku í þessari sýningarröð. Sýningin – SAMTÍMIS – fjallar um skörun á jarðsögulegum og mennskum tíma. Rannsóknarferlið hefur hverfst um speglun á tveimur trjám frá ólíkum tímum og stöðum. Í verkum Bjarka á sýningunni birtast annarsvegar trjáleifar sem fundust við rætur Breiðamerkurjökuls og hafa verið grafnar í jarðvegi þar í um þrjú þúsund ár og hinsvegar leifar af fornu tré í Sagehen skóginum í Sierra Nevada fjöllum Kaliforníu. Bjarki hefur í rannsókn sinni átt samtal við einstaklinga í ólíkum fögum á borð við jarðfræði, líffræði og fornleifafræði, tekið þátt í leiðangri á vegum Náttúrustofu Suðausturlands og dvalið í gestavinnustofu við Sagehen Creek Field Station, hluta af Kaliforníuháskóla í Berkeley í rannsóknarskóginum í Sagehen. Vinnustofudvöl listamanna við rannsóknarstöðina er í samstarfi við Miðstöð umhverfis og myndlistar við Nevada Museum of Art.
Bjarki er fæddur í Reykjavík 1983. Hann lærði myndlist við Red Cross Nordic United World College í Noregi, Listaháskóla Íslands, Universität der Künste í Berlín og lauk framhaldsnámi við CalArts í Los Angeles. Árið 2008 hlaut Bjarki styrk úr sjóði Guðmundu Andrésdóttur sem Listasafn Íslands veitir og síðar Lovelace Scholarship frá CalArts til framhaldsnáms auk þess sem hann fékk fyrstu verðlaun Listasjóðs Dungals. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningar alþjóðlega. Verk hans eru m.a. í safneign Listasafns ASÍ, Nýlistasafnsins, Listasafns Íslands, Gerðarsafns, stofnana og einkasafna á Íslandi og erlendis.
Við hvetjum lesendur að mæta á opnunina, það kostar ekkert inn og eru allir velkomnir.