
Lesfimipróf eru próf sem lögð eru fyrir grunnskólanemendur þrisvar sinnum á ári. Lesfimiprófin meta hversu hratt og nákvæmlega barn les texta við hæfi miðað við aldur. Prófin eru fyrst og fremst verkfæri til stuðnings, en ekki til samanburðar eða einkunnagjafar.
Nýlega voru gerðar breytingar á lesfimiprófunum, en þá féllu eldri lesfimiviðmið úr gildi. Áður voru niðurstöður prófanna bornar saman við fyrirfram ákveðin viðmið sem lýstu væntingum um árangur, en nú byggir matið á raunverulegum gögnum frá síðustu árum sem sýna hvernig lesfimi íslenskra barna þróast í reynd. Í stað þess að bera niðurstöður saman við ákveðin viðmið í lok skólaárs eru þær nú settar fram sem mælitala. Mælitölunni fylgir lýsing á stöðu nemanda, upplýsingar um styrk- eða veikleika í lestri og leiðbeiningar um áherslur í áframhaldandi lestrarkennslu.
Í byrjun mars birti Stjórnarráðið upplýsingar um námsframvindu barna í lesfimi eftir sveitarfélögum. Í þeim niðurstöðum kemur Sveitarfélagið Hornafjörður nokkuð vel út en 78% nemenda náði lágmarksviðmiðum í lesfimi vorið 2025.
Við getum því verið stolt af árangri nemenda okkar í lesfimi. Það er við hæfi nú þegar styttist í sumarfrí að minna á mikilvægi lesturs, líka í sumarfríinu. Þá er tilvalið fyrir börn og fullorðna að nýta sumarið til að lesa saman bæði heima og á ferðalögum.
Aðsend grein: Grunnskóla Hornafjarðar



