FAS hóf starfsemi árið 1987 og fyrstu árin voru nemendur útskrifaðir frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Árið 1997 fékk skólinn leyfi frá ráðuneytinu til að útskrifa stúdenta og hefur nú útskrifað nemendur í tæplega þrjá áratugi, bæði af stúdentsbrautum og eins úr ýmiss konar starfsnámi. Það eru fjöldamargir í samfélaginu okkar sem eiga minningar um að hafa farið í FAS og útskrifast þaðan. Á velflestum vinnustöðum í sveitarfélaginu starfar fólk sem undirbjó sig fyrir frekara nám í FAS. Okkur finnst alltaf jafn frábært þegar unga fólkið okkar snýr heim aftur og velur að búa hér.

Auglýsing

Við hugsum oft til fyrrverandi nemenda okkar og finnst gaman að heyra hvað er verið að fást við í dag. Margir búa hér, aðrir eru vítt og breitt um landið og einhverjir búa jafnvel erlendis og eru í framhaldsnámi eða í vinnu.

Við ákváðum að taka hús á fyrrverandi nemendum okkar og athuga hvað þau eru að fást við í dag. 


SÆVAR RAFN

Hvað er verið að brasa í dag?
Ég heiti Sævar Rafn Gunnlaugsson og útskrifaðist af náttúru- og raunvísindabraut frá FAS vorið 2023. Eftir útskrift frá FAS skráði ég mig í lífefna- og sameindalíffræði í Háskóla Íslands og lýk B.S. gráðu núna í vor. Eftir það er stefnan sett á meistaranám í sameindalíffræði og ætla ég fara í það nám í Finnlandi.

Hvernig var vistin í FAS?
Vistin í FAS var frekar góð og ég lærði mikið þar. Það var sérstaklega áhugavert og skemmtilegt að fara út og skoða umhverfið. Þannig er hægt að læra mikið. Þetta á t.d. við um ferð að Heinabergsjökli þar sem er verið að skoða ummerki eftir jökla og eins á Skeiðarársand þar sem er verið að fylgjast með gróðurframvindu á svæðinu.

Hvernig hefur veran í FAS nýst mér í frekara námi?
Námið hefur gagnast mér til framtíðar á margan hátt. Til dæmis hversu margir áfangar í náttúru- og raunvísindum eru í boði – miðað við að skólinn er ekki stór. Auk þess hefur æfingin í að tala ensku í námsumhverfi í erlendum samskiptaáföngum hjálpað til að auka þá nauðsynlegu félagsgetu sem þarf til að geta tekið þátt í vinnu á ensku á hærra menntastigi.

Hverjir eru kostir skólans?
Stærsti kosturinn er að geta búið heima og stundað nám í framhaldsskóla. Það er dýrt að flytja að heiman og nóg að gera það þegar farið er í háskóla. Annar kostur við skólann eru ferðirnar í erlendum samskiptum en þær ferðir bjóða upp á mikla upplifun og tækifæri til að kynnast öðru landi og annarri menningu.
Þá er það mikilvægur kostur að í FAS er hægt að fara til kennara nánast hvenær sem er til að fá aðstoð og kennslan þar er persónuleg.

Hverjir eru ókostir við svona lítinn skóla?
Í svona litlum skóla eru oft færri sérhæfðir áfangar í boði og þá þarf að taka þá í fjarnámi. Þetta á sérstaklega við þegar stefnan er sett á ákveðið háskólanám.


Hjördís Skírnisdóttir
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Tags: