Við sem flokkur og heild viljum tryggja það að sveitarfélagið starfi sem heild. Við viljum tryggja aðkomu og áhrif heimamanna í sveitunum þegar kemur að málefnum sem varða þeirra nærumhverfi. Eftir að hafa rætt við aðila í öðrum sveitarfélögum og staðfest grun okkar, þá er almennari ánægja og skilvirkni með heimastjórn en íbúaráði. Íbúaráð er sem stendur ákveðið tilraunaverkefni í sveitarfélaginu. Upp hafa komið stór mál innan sveitarfélagsins sem varðar sveitirnar og vankantar verið á þrátt fyrir íbúaráð. Því íbúaráð hefur ekki nægt vægi og ekki nægt upplýsingaflæði. Heimastjórn sinnir verkefnum sem varða landbúnaðarmál, menningarmál, umhverfis og deiliskipulagsmál, og umsögnum um staðbundin málefni og leyfisveitingar, í samstarfi við sveitarfélagið. Við viljum vísa fleiri málum til umfjöllunar í sveitirnar svo þau njóti meira raunsæis. Við viljum færa aukið vald í heimabyggðina. Ákvarðanavaldið á ekki að vera á einum stað, fjarri viðfangsefninu.
Sem dæmi er Múlaþing með heimastjórn. Múlaþing er stórt sveitarfélag og það erum við líka í Sveitarfélaginu Hornafirði. Eftir samtöl við íbúa og aðila í heimastjórn í Múlaþingi þá erum við í Miðflokknum sannfærð um að heimastjórn sé það sem muni færa íbúum ,dreifbýlisins sérstaklega, aukna ánægju sem íbúar. Til að taka dýpra í árinni þá höfum við í þessum samtölum hreinlega verið hvött til að taka upp heimastjórn í stað íbúaráðs.
Múlaþing var með íbúaráð áður en heimastjórnin tók yfir og þar var sama upplifun og við höfum. Þ.e.a.s. að íbúaráð hafi ekkert vægi.

Nú kynnu margir að spyrja hver kostnaðurinn sé við heimastjórn á móti íbúaráði. Svarið er að hann kynni að vera örlítið meiri, en það veltur þó á verkefnastöðunni og þeim verkefnum sem verður úthlutað til hverrar heimastjórnar ár hvert. Þetta er launuð stjórn en það er íbúaráð líka. Þó svo að kostnaðurinn kunni að vera meiri þá er heimastjórnin mun skilvirkari, hefur meira vægi og dæmin sýna að ánægjuvogin er á töluvert betri stað en með íbúaráði.
Það er að okkar mati mun betra fyrirkomulag að launuð vinna skili árangri og sátt heldur en að borga fyrir vinnu sem skilar litlu sem engu. Með þessu móti teljum við fjármunum betur varið og þetta er liður í bættri stjórnsýslu.
Heimastjórnir starfa samkvæmt lögum og í samstarfi við sveitarfélagið. Okkar draumur er að koma heimastjórnum í gagnið sem fyrst í samstarfi við íbúa á hverju svæði fyrir sig. Áður en kemur að frekari ákvörðunum um hvernig verður að þessu staðið munum við funda um málið og kynna það vel. Auk þess að vera viss um að þetta sé vilji íbúa í hverri sveit.
Sveitirnar okkar eru perlurnar sem hafa gert sveitarfélagið að þeim vinsæla áfangastað sem það er. Sveitirnar þekkir enginn betur en íbúarnir í sveitunum.
Færum þeim aukið vald með heimastjórn





