Mynd af leikhópnum sem setti upp leikritið Gleðilega Hátíð í fyrra

Leikfélagið stefnir að sjálfsögðu að ýmsu núna í vetur og við óskum alltaf eftir áhugasömum þáttakendum í stærri verkefni, minni verkefni eða bara til að styðja okkur.

Auglýsing

Eins og áður stefnum við á eitt stórt leikverk þar sem metnaðurinn verður mikill og öllu verður tjaldað til. 

Tímarammi á stóra verkefninu
Áætlaður frumsýningardagur er 6. mars og mun undirbúningurinn hefjast fyrir alvöru á góðri vinnuhelgi 8.–10. janúar. Þá verður hópurinn hristur saman og í kjölfarið hefst kröftugt æfingaferli.  Við stefnum á að upplýsa meira um þetta strax í október og þá tilkynna hvaða leikverk verður fyrir valinu. 

Við leggjum ávallt áherslu á sýningar sem blanda saman kynslóðum, tónlist og alls konar listformum. Leikstjóri verkefnisins verður enginn annar en Hornfirðingurinn Aron Martin Ásgerðarson. Stefnt er að lokasýningu 20. mars.

Einnig langar okkur að standa fyrir öflugri söngleikjaskemmtunn í lok nóvember. Þar er takmarkið að safna saman okkar frábæra fólki og halda tónleika þar sem þemað verður, eins og fyrr segir, söngleikjalög. Slíkt verkefni krefst að sjálfsögðu æfinga og því erum við enn að móta hvenær það ferli hefst.

Svipmyndir úr Lísu í undralandi

Tækninámskeið
Við stefnum einnig á tækninámskeið 16.–18. október, þar sem farið verður yfir helstu tæknimál leiksviðsins. Þar verður meðal annars lögð áhersla á hljóð- og ljósbúnað og þau forrit kynnt sem halda svona sýningum gangandi.

Önnur verkefni
Við erum líka að kanna hvort við getum fundið tíma fyrir meira improv í samstarfi við Improv Ísland og að sjálfsögðu langar okkur alltaf að gera meira en minna. 

Ef þið hafið áhuga á að taka þátt í einhverju af þessu hvetjum við ykkur eindregið til að skanna QR-kóðann hér fyrir neðan og skrá ykkur. Við hlökkum til að sjá ykkur!

Leikfélag Hornafjarðar

Tags: