Kofabyggðin vakti mikla lukku hjá krökkunum í sumar

Þrykkjan

Sú nýjung var í sumar að börnum í 5.-7. bekk bauðst að vera í kofabyggð, skólagörðum og sköpun með starfsmanni félagsmiðstöðvarinnar í stað þess að vera inni í Þrykkunni eins og undanfarin sumur. Markmiðið var að hvetja til meiri útivistar hjá þessum aldri þar sem þau gætu haft eitthvað skemmtilegt fyrir stafni. Þetta var ágætlega sótt og full ástæða til að vinna áfram.

Auglýsing

Nú er hefðbundið hauststarf Þrykkjunnar hafið. Nemendum í 8.-9. bekk býðst að vera í Þrykkjunni í hádeginu en 10. bekk býðst að vera í mat í mötuneytinu í Fas. Þetta er spennandi nýjung með það að markmiði að tengja 10. bekkinga í litlum skrefum við framhaldsskólann og minnka álagið í mötuneyti grunnskólans.

Þrykkjan er opin fyrir 5.-10. bekk  alla virka daga milli kl. 14:10- 16:00 mánudaga. Klúbbastarf verður alla virka daga milli kl 16:00-17:00 nema mánudaga, þá er það kl 17:00-18:00.  Þrykkjan er opin fyrir 8.-10. bekk mánudags.-, miðvikudags.- og föstudagskvöld kl 19:30-22:00.

Starfið í Þrykkjunni er fjölbreytt og margt hægt að gera t.d. pool, borðtennis, fótboltaspil, píla, föndur, sköpun og fleira. Þrykkjuráðið gerir dagskrá í samvinnu við starfsfólk en lögð er mikil áhersla á að maður er manns gaman, að hugmyndir og framkvæmd komi frá börnunum sjálfum og mikil áhersla lögð á samveru án snjalltækja.

Í samvinnu við nemendaráð FAS verður Þrykkjan opinn öll fimmtudagskvöld kl. 19:30-22:00 næstu 2 mánuði til reynslu, og ef vel gengur og mæting verður góð mun FAS halda þessum tíma í Þrykkjunni. Þannig að við hvetjum ungmenni til að mæta í Þrykkjuna næsta fimmtudag.

Gæsla, frístund og sumarnámskeið:

Í sumar sá sveitarfélagið um gæslu milli kl. 8-9 á morgnana og frístund milli kl. 13-16 í Kátakoti yfir 6 vikna tímabil, voru þá einnig í boði námskeið milli kl. 9-12 sem félagasamtök og einstaklingar sáu um.

Börn í 1.-4. bekk þar sem þau gátu valið um fótbolta, körfubolta, leiki og frjálsar íþróttir, dans, leiklist, listsköpun, fab lab, vísindasmiðju og kofabyggð á Höfn. Í Öræfum var líka boðið upp á tveggja vikna námskeið með fjölbreyttum viðfangsefnum t.d. klifri, kajak, kofabyggð, listsköpun og fleiru.

Krakkarnir í skólagörðunum

Yfir 350 skráningar voru á námskeiðin. Í lok leiklistar- og dansnámskeiða voru settar upp sýningar fyrir nánustu ættingja og stigu tveir dansarar af námskeiðinu á svið á Humarhátíð með glæsilegt dans atriði. Námskeiðin teygðu sig því út í menningar- og listalífið og upp reis einnig heil kofabyggð.

Kofabyggðin var samstarfsverkefni sveitarfélagsins sem skaffaði svæði þar sem börn gátu látið hugmyndaflug, verkvit og framkvæmdargleði blómstra með aðstoð og stuðningi frá fullorðnum einstaklingum. Markmiðið var samt að börnin gerðu þetta á sinn hátt sem þau svo sannarlega gerðu og risu um 15 fjölbreyttir kofar á svæðinu í sumar. Við hvetjum íbúa til að kíkja í byggðina sem mun standa á meðan veður leyfir og börnin eru enn að byggja.

Það er í boði fyrir öll börn að nýta sér svæðið og halda áfram með sína kofa, eða byrja á nýjum. Þau eru á eigin ábyrgð og því hvetjum við foreldra til þess að fara með þeim og eða fylgjast vel með að allt gangi sem allra best.  Því miður kom fyrir að kofar og fleira var eyðilagt í sumar, en með góðu samtali og samvirkni allra minnkum við líkurnar á því.  Kofabyggðin er sameign þar sem börn eru að byggja upp sitt eigið samfélag með stuðningi og aðstoð fullorðinna.

Vinnuskóli sumarsins

Vinnuskóli sveitarfélagsins var í boði frá 8. júní- 31. júlí. Alls störfuðu 45 unglingar úr 7.-10. bekk og sjö flokksstjórar við skólann og unnu fjölbreytt störf. Þetta er meiri fjöldi en starfað hefur í vinnuskólanum undnafarin ár og fögnum við því.

Andinn var góður og mörg verk unnin til að fegra og snyrta bæinn okkar. Einnig fengu ungmennin ýmiss konar fræðslu, hvetjandi fyrirlestur og lögð var áhersla á hópefli í gegnum leik og starf. Eins og undanfarin ár endaði vinnuskólinn á útilegu og fóru ungmennin þetta árið í ofsalega vel heppnaða ferð á Hala.

Við kveðjum sumarið með þakklæti til allra sem komu að barna- og ungmennastarfinu og bjóðum haustið velkomið með fullt af spennandi verkefnum og viðburðum.

Ágústa Margrét Arnardóttir
Verkefnastjóri Fræðslu- og frístundasviðs

Tags: