
Nú eru liðnir tæpir þrír mánuðir frá því að ný bæjarstjórn tók til starfa. Tíminn hefur verið nýttur til að hrinda mörgum verkum af stokkunum og undirbúa fleiri. Fyrsta verkið var að skerpa línur um ásýnd og umhirðu. Hagur heimila er okkur hugleikinn í erfiðu árferði. Nú þegar höfum við lækkað álögur á íbúa með því að fella niður fæðisgjöld á leikskólum og unnið er að undirbúningi fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár þar sem íbúar geta vænst lægri fasteignagjalda. Þá er fleira á teikniborðinu sem fær kynningu síðar.
Skólastarf
Haustinu fylgir oft ákveðin tilhlökkun, ekki síst þegar skólastarf hefst á nýjan leik. Við búum að góðu skólakerfi en við verðum sífellt að spyrja okkur að hvernig við getum bætt það. Sjaldan hafa fleiri börn verið á leikskólaaldri og starf í grunnskólum sveitarfélagsins er í góðum höndum. Í ár verður sú nýbreytni að 10. bekkur er í mat í Nýheimum ásamt nemendum framhaldsskólans og það er ekki annað að heyra en að almenn ánægja ríki um það. Í samstarfi við UMF Sindra verður boðið upp á íþróttaskóla fyrir börn í 1. og 2. bekk frá og með haustinu og ef vel gengur þá verður skoðað að bjóða upp á slíkt fyrir eldri börn í framtíðinni. Mikill þróttur er í starfi FAS og það er fullur ásetningur okkar að styrkja skólann í sessi. Í bígerð er sérstakt verkefni í samstarfi við Nýheima þekkingarsetur sem miðar að því að styrkja félagslíf ungs fólks á aldrinum 16–25 ára. Nemendagarðar eru einnig í sigtinu og gætu orðið mikilvægur liður í að efla skólann og gera ungu fólki auðveldara að velja nám hér.
Framkvæmdir
Eitt fyrsta verk nýrrar bæjarstjórnar var að skipa að nýju í starfshóp um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Þar stendur yfir greining á þeim valkostum sem uppi eru varðandi uppbyggingu íþróttahúss. Fleiri framkvæmdir eru í farvatninu eins og hafnarframkvæmdir, gatnagerð , malbikun og endurbætur á félagsheimilum. Það verður fjárfest fyrir milljarða á komandi árum og íþrótta- og skólamál verða þar í brenndepli.
Hagsmunagæsla
Uppbygging við Jökulsárlón er brýn en sérstaklega er mikilvægt að vandað sé til verka við úthlutun rekstrarleyfa innan þjóðgarðsins. Að þessu hefur verið unnið ötullega í sumar. Ákvarðanir um starfsemi og uppbyggingu verður að taka mið af samfélaginu sem þjóðgarðurinn er hluti af. Jafnframt er mikilvægt að missa ekki sjónar á öðrum mikilvægum þáttum í starfi þjóðgarðsins eins og frekari uppbyggingu í Skaftafelli og uppbyggingu gestastofu á Höfn. Þessi málflutningur hefur náð eyrum ráðamanna.
Nýr vegur var opnaður í sumar yfir Hornafjörð. Sú vegstytting er mikilvæg fyrir marga íbúa sem sækja þjónustu og menntun til Hafnar en líka fyrir þá sem sækja atvinnu vestur yfir Fljót. Við bjuggumst öll við veggjöldum enda framkvæmdin hluti af lögum sem Alþingi setti um fjármögnun ýmissa vegbóta. Upphæðin er hins vegar úr hófi. Mikilvægast er að stórnotendur af veginum fái miklu meiri afslátt af ferðum yfir veginn en kynnt hefur verið. Þessum sjónarmiðum hefur verið haldið á lofti og áfram verður haldið.
Atvinnulífið
Sumarið hefur að mörgu leyti verið gott. Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir og gaman að sjá hve mikið líf var á svæðinu en mikill fjöldi innlendra og erlendra ferðamann sótti okkur heim. Ferðaþjónustan hefur gengið vel og aflabrögð ágæt. Góð teikn eru á lofti varðandi humarstofninn sem eykur okkur bjartsýni að Höfn geti aftur skreytt sig sem hinn eini sanni humarbær landsins. Sveiflur í sjávarútvegi eru vel þekktar og á sama tíma og góðar fréttir berast af humrinum er mikil niðursveifla í makríl sem hefur sannarlega áhrif.
Almennt er gott hljóð í bændum, þótt sú staða að enginn starfandi dýralæknir sé nú á svæðinu valdi eðlilega áhyggjum. Unnið er að því að tryggja að nauðsynleg dýralyf séu aðgengileg á hverjum tíma og jafnframt þarf að finna varanlega lausn á dýralæknaþjónustu.
Skipulagsmál
Unnið er að mörgum málum er tengjast skipulagi í sveitarfélaginu. Við þurfum að fjölga lóðum eins og kostur er, bæði fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi og íbúðarhúsnæði. Nokkur spennandi verkefni eru nú á teikniborðinu og verði þau að veruleika má gera ráð fyrir töluverðri fjölgun starfa. Þá þurfum við jafnframt að vera tilbúin að taka á móti nýju fólki. Atvinnuuppbygging, húsnæðismál og þjónusta verða að haldast í hendur.
Íbúakosning er fyrirhuguðu um uppbyggingu á vegum Landsbyggðar við hafnarsvæðið. Lagt er upp með að allar nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir um skipulag og samninga á haustdögum.
Við þurfum að vanda okkur sérstaklega þegar stórar ákvarðanir eru teknar í dreifbýlinu. Áhrif einstakra framkvæmda geta þar verið hlutfallslega meiri í þéttbýlinu. Uppbygging við Skaftafell er gott dæmi. Um leið og við viljum vaxa og dafna verðum við því að gæta að því sem fyrir er. Vöxtur er ekki markmið í sjálfu sér nema hann styrki samfélagið til lengri tíma og almenn sátt ríki.
Verkefnin framundan eru því bæði mörg og fjölbreytt. Við eigum góð tækifæri til vaxtar en þau kalla líka á vandaðar ákvarðanir. Markmiðið hlýtur að vera að byggja upp öflugt samfélag þar sem atvinnulíf fær að dafna og stjórnvöld – hvaða nafni sem þau nefnast – standi með atvinnulífinu og hjálpi en hindri ekki vöxt þess og viðgang. Þá þurfum við góða almenna og opinbera þjónustu þannig að fólk sjái tækifæri til að búa, starfa og ala upp fjölskyldu á okkar góða stað.



