
Er kominn tími til að endurskoða miðstýringu, skattlagningu og þau skilyrði sem fólk og fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins búa við? Hversu vel skilja íslenskir stjórnendur, stjórnvöld og opinberar stofnanir raunveruleikann sem íbúar og fyrirtæki á landsbyggðinni búa við?
Stór hluti verðmætasköpunar Íslands fer fram utan höfuðborgarsvæðisins. Þar starfa fyrirtæki, skapast störf og verða til verðmæti sem skipta þjóðarbúið miklu máli. Samt virðist oft sem ákvarðanir um rekstrarumhverfi, skattlagningu og þjónustu séu teknar út frá aðstæðum höfuðborgarsvæðisins, án nægilegs skilnings á veruleika landsbyggðarinnar. Þá vaknar eðlileg spurning: Hvers vegna verður stór hluti verðmætasköpunar þjóðarinnar til úti á landi á meðan stór hluti ákvarðanatökunnar, stjórnsýslunnar og stefnumótunarinnar er áfram miðaður við höfuðborgarsvæðið?
Annar rekstrarveruleiki
Það er ekki hægt að bera rekstur fyrirtækja í Reykjavík og á landsbyggðinni saman án þess að taka tillit til ólíkra aðstæðna. Fjarlægðir, veðurfar, samgöngur, flutningskostnaður og skortur á starfsfólki og sérhæfðri þjónustu geta haft veruleg áhrif á rekstur. Einföld viðgerð getur kallað á langa ferð og truflun á starfsemi. Aðföng og þjónusta eru ekki alltaf aðgengileg með sama hætti og í þéttbýlinu.
Þetta er veruleiki sem þeir sem móta rekstrarskilyrði fyrirtækja þurfa að þekkja. Ákvarðanir verða að byggjast á raunverulegum aðstæðum en ekki eingöngu á almennum útreikningum og stöðluðum reglum.

Hver ber aukakostnaðinn?
Skattar og opinber gjöld eru annað stórt álitaefni. Veggjöld, kílómetragjöld og annar samgöngukostnaður geta haft sérstaklega mikil áhrif á fólk og fyrirtæki sem þurfa að ferðast langar vegalengdir. Á mörgum stöðum á landsbyggðinni er bíll ekki munaður heldur forsenda þess að geta sinnt vinnu, skóla, heilbrigðisþjónustu og daglegum erindum. Fyrirtæki eru sömuleiðis háð ökutækjum til að flytja starfsfólk, vörur og búnað.
Kílómetragjald getur því haft allt önnur áhrif á einstakling sem þarf að aka tugi eða hundruð kílómetra vegna vinnu og daglegra þarfa en þann sem hefur stuttar vegalengdir og fleiri samgöngumöguleika. Þessu til viðbótar er verð á eldsneyti og nauðsynjavörum oft hærra úti á landi vegna flutningskostnaðar og takmarkaðrar samkeppni.
Er sanngjarnt að leggja sömu gjöld á fólk með svo ólíkar aðstæður? Er tekið nægilegt tillit til þeirra sem hafa ekkert raunhæft val um akstur eða hvar þeir geta keypt nauðsynjar? Jafnræði snýst ekki alltaf um að allir greiði það sama. Það snýst líka um að taka tillit til ólíkra aðstæðna.
Hamlar miðstýring uppbyggingu?
Það er ástæða til að spyrja hvort miðstýring valds og ákvarðanatöku sé farin að hamla nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Fyrirtæki og sveitarfélög þurfa oft að sækja ákvarðanir til stofnana í Reykjavík. Þar getur skort þekkingu á staðbundnum aðstæðum og þeim tækifærum sem felast í því að færa ákvarðanir nær þeim sem þær varða.
Sá tími sem opinberar stofnanir gefa sér í að svara erindum skiptir vikum og jafnvel mánuðum, stundum með algerlega óþörfu málþófi, og er verulega hamlandi. Verðmætasköpun verður ekki til af sjálfu sér. Það er mikilvægt fyrir samfélög eins og Austur-Skaftafellssýslu að fá frið og tækifæri til að vaxa og dafna, samhliða nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Nýsköpun og uppbygging fyrirtækja tekur tíma. Frumkvöðlar þurfa svigrúm til að þróa vörur sínar og þjónustu, prófa nýjar hugmyndir og byggja starfsemi sína upp í áföngum.
Gæði og öryggi eiga að vera sjálfsögð markmið, en regluverk, leyfisveitingar og síbreytilegar kröfur mega ekki verða meiri hindrun fyrir nýsköpun en stuðningur við hana. Framkvæmdin þarf að taka mið af stærð fyrirtækja, staðbundnum aðstæðum og þeim tíma sem þarf til að þróa nýja starfsemi. Meiri valddreifing myndi skapa svigrúm fyrir frumkvæði, staðbundnar lausnir og hraðari viðbrögð. Sveitarfélög, atvinnurekendur og íbúar þurfa ekki aðeins að fá tækifæri til að tjá sig um ákvarðanir sem varða þeirra svæði, heldur að hafa raunveruleg áhrif á þær.
Það er munur á því að fá að segja sína skoðun eða að hafa vald til að móta niðurstöðuna.

Ísland er eitt land
Þetta snýst ekki um að stilla Reykjavík og landsbyggðinni upp sem andstæðingum. Höfuðborgarsvæðið er mikilvægur hluti af íslensku samfélagi, en það er landsbyggðin líka. Við getum ekki talað um byggðafestu og mikilvægi verðmætasköpunar á landsbyggðinni án þess að skoða hvort fólki og fyrirtækjum þar séu í raun búin sambærileg skilyrði. Það þarf að horfa á heildarmyndina: skattlagningu, opinbera gjaldtöku, samgöngur, þjónustu, fjárfestingar og stjórnsýslu. Allt þetta hefur áhrif á hvort fólk sér framtíð í heimabyggð sinni og hvort fyrirtæki hafa raunhæfa möguleika á að vaxa.
Það er ekki nóg að stjórnvöld tali um mikilvægi landsbyggðarinnar þegar kemur að verðmætasköpun, ferðaþjónustu, auðlindum og atvinnulífi. Það þarf líka að endurspeglast í ákvörðunum þeirra. Landsbyggðin þarf ekki forréttindi. Hún þarf sanngjörn skilyrði, raunverulegt svigrúm til uppbyggingar og virðingu fyrir þeim sem þar búa og starfa. Það er ekki hægt að ætlast til þess að landsbyggðin skapi verðmætin ef hún fær ekki jafnframt raunverulegt tækifæri til að njóta þeirra og móta eigin framtíð. Landsbyggðin er ekki jaðar höfuðborgarsvæðisins. Landsbyggðin er undirstaða velmegunar samfélagsins sem við viljum búa í.
Spurningin er hvort þeir sem fara með völd og ákvarðanir séu tilbúnir að viðurkenna það í verki en ekki aðeins í orði.



