Þegar við hjá Landsbyggð kynntum fyrstu hugmyndir okkar að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæ Hafnar í vor fengum við fjölmargar ábendingar. Sumar komu fram á íbúafundinum sjálfum, aðrar í samtölum við íbúa, rekstraraðila og fleiri sem þekkja svæðið vel. Þær hafa haft bein áhrif á tillöguna. Það sést meðal annars á því hvernig við höfum minnkað umfang byggðar við Hepputorg, endurhugsað Bárubyggð og unnið hönnun hótelsins áfram.

Auglýsing

Nýtt bæjartorg á Heppuhæð

Hepputorg þarf að rúma bæjarhátíð og samt vera nógu afmarkað til að þar sé notalegt á venjulegum degi á Höfn. Við höfum því minnkað umfang byggðar á Heppusvæðinu og lagað stærð torgsins betur að bænum. Fjögur hús ramma torgið inn, með verslun og veitingastöðum á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum. Þannig verður torgið hluti af daglegu lífi í miðbænum.

Sjaldan er ein báran stök

Bárubyggð er vinnuheiti á fyrirhuguðu íbúðahverfi milli íþróttahússins Bárunnar og miðbæjarins. Þar höfum við endurskoðað skipulagið frá grunni að stórum hluta og tengt hverfið betur við íþróttasvæðið og þá innviði sem þegar eru til staðar. Tillagan gerir ráð fyrir um 70–80 íbúðum af ýmsum stærðum og gerðum í skjólgóðu og barnvænu umhverfi.

Hótel sem tekur mið af staðaranda

Við höfum líka unnið áfram með útlit og umfang hótelsins sunnan við höfnina. Í tillögunni skiptist hótelið í röð húsa með ólíkum þakformum og litum. Með því að brjóta byggðina upp á þennan hátt fellur hótelið betur að umhverfi sínu og útsýnið yfir höfnina, til Leiðarhöfða og jöklanna, helst opið.

Gert er ráð fyrir allt að 120 herbergjum. Við teljum að hótelið geti orðið mikilvægt kennileiti við höfnina og styrkt rekstrargrundvöll verslunar og þjónustu í miðbænum allt árið.

Íbúar eiga að hafa sitt að segja

Þegar skipulag hefur jafn víðtæk áhrif á ásýnd bæjarins og daglegt líf til framtíðar finnst okkur eðlilegt að íbúar fái að greiða atkvæði um það. Við höfum reynslu af slíku á Selfossi, þar sem kosið var um nýjan miðbæ árið 2018 í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg. Þar tóku um 55% þátt. Sú reynsla sýndi okkur hvað það skiptir miklu að gefa fólki tækifæri til að kynna sér tillöguna, ræða hana og taka afstöðu.

Við erum að leggja lokahönd á kynningarefnið og munum kynna tillöguna nánar á næstu dögum og vikum, m.a. á opnum íbúafundi. Fyrir hönd Landsbyggðar vil ég þakka fyrir gott samstarf við bæjaryfirvöld til þessa og öllum sem hafa gefið sér tíma til að koma ábendingum á framfæri. Ég hvet íbúa til að kynna sér tillöguna og taka þátt í kosningunni.

Nánari upplýsingar verður að finna á midbaerhofn.is.

Aðsend grein: Friðjón Sigurðarson
framkvæmdastjóri þróunar, fyrir hönd Landsbyggðar.

Tags: