Nú þegar vetrarfríi grunnskólans er lokið, getur maður ekki annað en staldrað við og hugsað til baka hver tilgangur þessara daga er?

Auglýsing

Öll vitum við að hinn eiginlegi tilgangur með vetrarfríunum var að hvíla börnin frá náminu og er það vel. En þá vakna upp spurningar með lengd þessara fría og tímasetningu?

Nú er svo komið að vetrarfríið í Grunnskóla Hornafjarðar var öllu klínt á sömu vikuna núna í lok október, og þar af leiðandi verða þarna fjórir samliggjandi frídagar. Foreldraviðtalsdegi var einnig bætt við í þessari sömu viku og var þá engin kennsla orðin í heila viku. Þetta gerði þá níu heila daga að helgunum meðtöldum.

Þetta vetrarfrí hafði einnig áhrif á aðra starfsemi samfélagsins okkar, eins og frístundir/íþróttaæfingar féllu niður ásamt því að sérstakir skráningardagar voru settir á í leikskólanum, þá með tilheyrandi kostnaði fyrir barnafjölskyldur sem þurftu að nýta sér þá.

Það vill svo til að við búum í sveitarfélagi sem er með fjölbreytta atvinnustarfsemi og oft á tíðum langar vegalengdir á milli staða. Með það að leiðarljósi, finnst mér að skólayfirvöld megi vanda sig betur í gerð skóladagatals og taka tillit til annarra atvinnugreina við gerð þess.

Í fjölbreyttu samfélagi eru ólíkar fjölskyldur og fólk sem hefur ekki sömu tækifæri, t.d. geta ekki allir fengið eða tekið frí úr vinnu til þess að vera heima með börnum á þessum frídögum. Hvað þá skroppið til útlanda eða einhverjar aðrar ferðir. Meira að segja hafa sumir ekkert bakland til þess að halla sér að og jafnvel sökum vinnu er þetta nær ómögulegt að hafa börnin heima í þetta langan tíma, hvað þá svona stuttu eftir að skólinn byrjaði, sem var í lok ágúst.

Það getur verið erfitt að þurfa að ræða við börnin um það af hverju bekkjarfélagar fá að gera eitthvað skemmtilegt eða fara með foreldrum í ferðalag á meðan aðrir hafa ekki tök á því að nýta sér það. Vetrarfríið er orðið jafn langt og páskafríið eins og það var sett upp núna, og er það sumum börnum frekar erfitt. Meðan einu barninu finnst þetta alltof langur tími frá skóla finnst öðru því kannski erfitt að byrja aftur í skólanum eftir fríið. Börnin vilja og þurfa rútínu, með því að slíta þau svona úr henni er tilgangurinn með vetrarfríinu farinn. Er kannski þetta vetrarfrí gert fyrir einhverja aðra en börnin?

Ég vil hér með brýna fyrir skólayfirvöldum að taka þessi vetrarfrí til gagngerrar endurskoðunar.

Greinarhöfundur er þriggja barna faðir sem kom illa út úr síðasta vetrarfríi.

Aðsend grein: Bjarni Haukur Bjarnason

Tags: