Krónan stefnir að því að opna nýja verslun á Höfn í nóvember á þessu ári. Verslunin verður  að Hafnarbraut 60A, á svæðinu við gömlu mjólkurstöðina.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri.

Að sögn Guðrúnar Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, hefur undirbúningurinn gengið vel og segir: „Við erum mjög spennt að komast inn í húsnæðið eftir verslunarmannahelgi og hefja uppsetningu verslunarinnar. Nú fer verkefnið virkilega að taka á sig mynd og það er mikil tilhlökkun í teyminu”.

Verslunin verður um 1.200 fermetrar að stærð, svipuð að stærð og verslanir Krónunnar á Akrabraut og í Norðurhellu. Þar verður lögð áhersla á bjarta, nútímalega og þægilega verslun með góðu skipulagi, breiðum göngum, góðri lýsingu og umhverfisvænum kælilausnum. Sjálfsafgreiðslukassar verða í versluninni og viðskiptavinir geta nýtt sér Skannað og skundað frá fyrsta degi. Síðar verður verslunin einnig tilbúin fyrir snjallverslun.

Ferskleiki verður í forgrunni, með stórri ávaxta- og grænmetisdeild, ferskvörudeild, fjölbreyttu vöruúrvali og áherslu á hagstætt verð.

Guðrún segir Krónuna hafa lengi horft til Hafnar sem spennandi staðsetningar. Samfélagið sé öflugt og í vexti, ferðamennska mikil og aukin samkeppni, meira vöruúrval og öflug þjónusta geti skilað ávinningi fyrir bæði íbúa og gesti. Þá hafi fyrirtækið fundið fyrir sterku ákalli frá íbúum sem hafi lengi kallað eftir Krónuverslun á Höfn.

Opnun verslunarinnar mun einnig skapa ný störf á svæðinu. Þegar hafa verið ráðnir verslunarstjóri og vaktstjóri, sem hafa starfað hjá Krónunni um nokkurt skeið. Á næstu vikum og mánuðum verður ráðið í fleiri stöður og gert er ráð fyrir að verslunin skapi 12 til 15 stöðugildi í upphafi.

Aðspurð hvort sérstök áhersla verði á vörur beint frá bónda eða frá framleiðendum á svæðinu segir Guðrún að það sé eitthvað sem Krónan vilji gjarnan skoða.

„Við höfum átt farsælt samstarf við íslenska framleiðendur víða um land og það skiptir okkur miklu máli að geta boðið viðskiptavinum upp á sem mest af góðri íslenskri framleiðslu. Við viljum að verslunin endurspegli sitt nærumhverfi og erum þegar farin að ræða við aðila á svæðinu.“ segir hún og bætir við að Krónan vilji að verslunin endurspegli sitt nærumhverfi.

„Við erum gríðarlega spennt fyrir því að opna Krónuna á Höfn. Það er okkur mikilvægt að verða hluti af samfélaginu, skapa störf og byggja upp traust langtímasamband við íbúa svæðisins,“ segir Guðrún.

– GÁS

Tags: