
Um næstu helgi verður sannkölluð frjálsíþróttaveisla í Suðursveit þegar Ungmennafélagið Vísir heldur Vígslumót Vísisvallar við Hrollaugsstaði. Mótið er haldið nákvæmlega einu ári eftir fyrstu skóflustungu að nýjum frjálsíþróttavelli félagsins og markar tímamót í íþróttasögu svæðisins.
Vígsluhelgin hefst föstudaginn 26. júní klukkan 13:00 með dagskrá í tilefni af Alþjóðlega Ólympíudeginum í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ). Börnum og ungmennum verður boðið að taka þátt í fjölbreyttum íþróttagreinum, leikjum og hreyfingu við allra hæfi.
Frjálsíþróttamótið sjálft fer fram laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. júní. Setningarathöfn hefst klukkan 10:00 á laugardagsmorgni og fyrstu keppnisgreinar hefjast klukkan 10:30.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ásamt hluta stjórnar sambandsins mun heiðra samkomuna með nærveru sinni við vígslu vallarins. Keppt verður í öllum stökk- og kastgreinum frjálsíþrótta auk 60 metra hlaups og 60 metra grindahlaups. Keppt verður í aldursflokkum 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og fullorðinsflokki. Einnig fá 9 ára og yngri tækifæri til að spreyta sig í 60 metra hlaupi og boltakasti.
Þótt margt af fremsta frjálsíþróttafólki landsins verði meðal keppenda er mótið opið öllum. Mótshaldarar hvetja börn, ungmenni og fullorðna til að skrá sig og taka þátt, hvort sem markmiðið er að elta Íslandsmet eða einfaldlega njóta þess að keppa á nýjum frjálsíþróttavelli. Skráning fer fram á meets.rosterathletics.com og er skráningarfrestur til miðnættis fimmtudaginn 25. júní.
Keppendur víðsvegar af landinu hafa skráð sig til leiks, meðal annars frá Ármanni, FH, Fjölni, ÍR, Mána, Sindra, Dímon og fleiri félögum. Þar munu mætast afreksmenn fortíðar, nútíðar og framtíðar á einum og sama keppnisvellinum.
Meðal þeirra sem þegar hafa boðað komu sína er Hera Christensen, núverandi Íslandsmethafi í kringlukasti kvenna, sem mun freista þess að bæta eigið Íslandsmet. Þá hafa nokkrir af sterkustu spretthlaupurum landsins skráð sig í 60 metra hlaup karla og telja mótshaldarar raunhæfan möguleika á að Íslandsmetið í greininni verði bætt á mótinu. Þar ber helst að nefna Kristófer Þorgrímsson sem er meðal þeirra sem eiga raunhæfan möguleika á að gera atlögu að núverandi Íslandsmeti.
Eitt af því sem vekur sérstaka athygli er stangarstökkskeppnin. Í fyrsta sinn verður keppt í stangarstökki í Suðursveit við nútíma aðstæður og aðeins í annað sinn á þessari öld innan USÚ. Nokkrir af fremstu stangarstökkvurum landsins eru skráðir til leiks og eiga möguleika á að stökkva yfir fimm metra markið.
Önnur grein sem vekur sérstaka athygli er 60 metra hjólastólasprettur, en slík keppni sést sjaldan á íslenskum frjálsíþróttamótum.
Lýsing á mótinu verður í höndum Sigurbjörns Árna Arngrímssonar sem mun fylgja keppendum og áhorfendum í gegnum dagskrána alla helgina.
Mótið er skráð í Global Calendar hjá World Athletics og verður því í fyrsta sinn hægt að ná alþjóðlega skráðum árangri á frjálsíþróttamóti í Suðursveit við fullgildar keppnisaðstæður.
Mótshaldarar hvetja alla áhugasama til að leggja leið sína að Vísisvelli um helgina, fylgjast með fremsta frjálsíþróttafólki landsins og taka þátt í þeirri gleði sem fylgir því þegar nýr kafli hefst í íþróttasögu Suðursveitar.




