
Heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna fór fram á Humarhátíð og tóku 78 spilarar þátt í mótinu að þessu sinni.
Alls var spilað á 26 borðum. Keppnin fór fram í nokkrum umferðum þar sem spilað var niður í 27 manna hóp, þaðan í níu manna úrslit og loks spiluðu þrír keppendur um efstu sætin.
Úrslitin urðu þau að Jónína Heimisdóttir frá Fáskrúðsfirði sigraði mótið og varði þar með heimsmeistaratitilinn frá því í fyrra. Hún heldur því Humarskálinni annað árið í röð, en það hefur aðeins einu sinni áður gerst frá því byrjað var að keppa í Hornafjarðarmanna fyrir 29 árum.
Í öðru sæti varð Þórhildur Kristinsdóttir og í þriðja sæti Hans Christensen, bæði búsett á Höfn í Hornafirði.
Margrét Eyjólfsdóttir frá Hornafirði vann titilinn tvö ár í röð árin 1999 og 2000. Gísli Jóhannsson frá Brunnum hefur einnig unnið mótið tvisvar.
Mótið á sér langa sögu og hefur verið hluti af Humarhátíð allt frá því Hornafjarðarmanninn var endurvakinn sem keppnisspil í kringum 100 ára afmæli Hafnar árið 1997. Þá var fyrsta heimsmeistaramótið haldið í stóra tjaldinu á bryggjunni og tóku um 300 spilarar þátt.
Í nýlegu viðtali við Eystrahorn rifjaði Albert Eymundsson upp hvernig hugmyndin kviknaði, hvernig reglurnar voru skráðar og hvernig Hornafjarðarmanninn varð aftur hluti af lifandi spilamenningu bæjarins. Lesa má viðtalið hér.


















