Stefán Brandur og Sigga í Martölvunni fá hrós frá mér fyrir að standa vaktina í rafheimum með ráðleggingum, lausn vandamála og vörusölu. Það er mjög verðmætt í litlu samfélagi eins og okkar að geta í heimabyggð gengið að góðri þjónustu í sífellt flóknari rafheimi. Almenna þróunin er sú að nærþjónustan er að dragast saman og smáfyrirtækjum er að fækka. Þessi þróun dregur úr gæðum samfélaga. Við getum spornað við henni með því að nýta okkur þjónustu í heimabyggð og með þeim hætti gert okkar samfélag betra. Ég vil líka hrósa Stefáni sérstaklega fyrir að vera skoðanaduglegur maður hvort sem ég hitti hann í búðinni eða í rafheimum. Upp með nálægð, samtal og samskipti í nærsamfélaginu.

Auglýsing

Eyjólfur Guðmundsson

Tags: