Úr ferð ferðafélagsins. Gengið fyrir Horn. Aðsend mynd.

Starf Ferðafélags Austur-Skaftfellinga hefur verið með hefðbundnum hætti síðustu misseri. Á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í apríl, urðu nokkrar breytingar á stjórn og nefndum. Félagið þakkar þeim sem létu af störfum kærlega fyrir þeirra framlag og býður nýja fulltrúa velkomna til starfa.

Árið 2025 var viðburðaríkt hjá félaginu. Farnar voru sex styttri ferðir um nærumhverfi sveitarfélagsins, auk þess sem félagið tók þátt í geðræktargöngum í Gulum september. Þá var ein ferð farin í samstarfi við Bjarnanesprestakall og séra Stíg, þar sem gengið var fyrir Horn og ferðinni lauk með hugvekju í kirkjuleikmynd við Hafnartanga.

Sæludagar á Lónsöræfum voru einnig á sínum stað og tóku 24 þátt í þeirri ferð, sem nýtur mikilla vinsælda. Ferðafélagið fagnaði jafnframt 45 ára afmæli sínu með utanlandsferð til Skotlands undir leiðsögn Ingu Geirsdóttur. Ferðin var uppseld og afar vel heppnuð, með léttum göngum, skoðunarferðum og fjölbreyttri dagskrá.

Múlaskáli var vel nýttur sumarið 2025. Fyrsti hópur kom 2. júlí og sá síðasti 20. ágúst. Alls voru gistinætur 697 og gestakomur 307. Þótt nokkrar afbókanir hafi orðið vegna veðurs og ófærðar gekk sumarið vel og gestir nutu fegurðar og friðsældar Lónsöræfa.

Ferðanefnd hefur nú sett saman ferðaáætlun fyrir gönguárið 2026. Uppsetningin er að hluta til sveigjanleg, þar sem sumar ferðir verða auglýstar eftir veðri og færi. Félagið hvetur því fólk til að fylgjast vel með auglýsingum á samfélagsmiðlum. Sæludagar á Lónsöræfum verða á sínum stað og er uppselt í þá ferð. Skálaverðir verða í Múlaskála frá 28. júní til 20. ágúst og landvörður verður á svæðinu á sama tíma.

Undirbúningur sumarsins í Kollumúla er einnig hafinn af fullum krafti. Vinnuferð félagsins var farin helgina 12. til 14. júní og tókst afar vel. Veðrið lék við hópinn og góður vinnuandi ríkti alla helgina. Skálinn var þrifinn hátt og lágt, smíðaður pallur, girðing lagfærð þar sem þurfti að þétta á milli staura og einnig gafst tími til að fara í gönguferð um svæðið. 

Bókanir og upplýsingar um Múlaskála má finna á www.gonguferdir.is, með tölvupósti á ferdafelag@gonguferdir.is eða hjá Möggu í síma 868-7624. Árgjald félagsins er 9.900 kr. og innifalin er árbók Ferðafélags Íslands og félagsskírteini sem veitir afslátt í skála, ferðir og ýmsar útivistarbúðir.

Aðsend grein
Ferðafélag Austur-Skaftfellinga

Tags: