Hljómsveitin Dópamín kom fram á Morávekpallinum árið 2025

Sumarið 2017 stóð Humarhátíðin á ákveðnum krossgötum má segja, það var mikilvægt að halda hana að okkar mati. Við eigum að eiga bæjarhátíð sem dregur til okkar gesti, gesti sem vilja vera saman og skemmta sér. Það er ekki sjálfgefið að fá einstaklinga til að halda hátíð eða gefa af sér heila helgi í sjálfboðavinnu.

Þess vega fórum við í þá vegferð að finna út úr því hvað við gætum gert fjölskyldan á Ránarslóð til að bjóða upp á eitthvað fyrir bæjarbúa án þess að vera að trufla eiginlega dagskrá hátíðarinnar og auka fjölbreytni í viðburðum. Þannig verður Morávekpallurinn til sumarið 2017. 

En hvað einkennir okkar fjölskyldu og hvað getum við lagt til sem aðrir hafa áhuga á. Þetta var svo sem enginn hausverkur. Lá eiginlega í augum uppi. Það sem einkennir okkur er tónlistin og einlægur mataráhugi. Þetta sumar var til humar og hljóðfæri á heimilinu. Því varð það úr að setja hljóðfæri á pallinn okkar og fíra undir grillinu. Allir sem komu var velkomið að grípa í hljóðfærin og spila. Haldin var djammsession og þeir tónlistarmenn sem komu fram voru: Marteinn Eiríksson trompet, Þorkell Ragnar Grétarsson gítar, Birgir Freyr Elvarsson bassa, Jóhann Morávek saxaphone, Sturlaugur Þorsteinsson hljómborð, Heiðar Sigurðsson hljómborð, Salóme Morávek söngur og Haukur Ingólfsson trommur, öll eru þau tengd Hornafirðinum á einhvern hátt. Því var það sumarið 2018 þegar ég var í Humarhátíðanefndinni þá tókum við þá ákvörðun að allir gætu boðið upp á pallapartý á laugardeginum utan hefðbundinnar dagskrár. Eitthvað var um það að opnir pallar væru á heimilum en þetta hefur ekki fest sig í sessi nema á Morávekpallinum sem hefur verið óslitið síðan 2017 að undanskildu einu sumri 2022. 

Aðeins einu sinni á þessum árum hefur pallurinn færst inn í stofu, það var hreinlega ekki hundi út sigandi. Þá voru það Salóme Morávek og Sædís Harpa Stefánsdóttir sem spiluðu fyrir gesti þá var fátt í stofunni á Ránarslóð um 20 manns sem komu. Konan barðist í rigningunni við grillið. Við erum ekkert að gefast upp þó móti blási.

Það hefur alltaf verið hægt að vera úti þessi árin, við klæðum okkur eftir veðri og tökumst á við það. 

Alls hafa listamennirnir verið 33 sem hafa haft viðkomu á pallinum í gegnum árin en inni í þeirri tölu eru alls ekki allir sem hafa komið við og gripið í hljóðfæri. En þeir eru æði margir. 

Gestirnir sem hafa komið eru á milli 300 og 400, ekki hefur verið haldin gestabók yfir þá því er þetta eins og svo margt annað hrein ágiskun. 

Fjölmennasti pallurinn er sennilega sumarið 2021 en þá var Una Stef og SP74 að spila. Þá voru milli 80 og 90 manns sem mættu. 

Vissulega má segja að við þekkjum nokkra tónlistarmenn sem hafa gefið af sér á Morávkepallinum. En upphaflega hugmyndin er sú að einhver sem kemur fram með sveitinni verður að hafa tengingu við Hornafjörð. Þar hafa börnin okkar sterka tengingu og vinir þeirra. 

Morávek pallurinn hefur undið upp á sig en sumarið 2024 þegar Teitur Magnússon var hér þá var um leið myndlistasýning. Listamaðurinn Dagur Benedikt Reynisson var með sýningu. Þetta fannst mér styrkja þessa uppákomu og 2025 þá bauð ég myndlistamönnum á Hornafirði að vera með sýningu hjá okkur, meðan hljómsveitin Dópamín spilaði. Við ætlum að halda áfram að bjóða listamönnum til okkar og í ár er það leirlistakonan Birna Jódís Magnúsdóttir sem ætlar að vera með sínar vörur á pallinum. 

Hljómsveitin í ár er með sterka tengingu við okkur heimilisfólk en þar spilar Sólveig Morávek. En hljómsveitin Látún er með skemmtilegri hljómsveitum sem ég hef hlustað á. Því miður missi ég yfirleitt af þeirra tónleikum þannig að ég brá á það ráð að fá þau til okkar og ætla svo sannarlega að njóta. 

Það er ekki alveg einfalt að halda þennan viðburð eins og hann er orðinn í dag. En undanfarin ár hefur Humarhátíðin stutt við bakið á okkur með því að nýta tónlistarmennina í að koma fram á hátíðinni sjálfri. Menningarmiðstöð Hornfjarðar aðstoðaði okkur á covid árunum þegar engin hátíð var en aðrar uppákomur voru styrktar. 

Þau fyrirtæki sem komu að þessu í fyrra og í ár fá þúsund þakkir frá okkur hjónum um að gera okkur kleift að koma þessu á koppinn. Humarhátíðarnefndin kemur að þessu líka í ár og ætlar Látún að styrkja Lúðrasveit Hornafjarðar og spila í Humarsúpunum og á hátíðarsvæðinu á föstudeginum. Þannig náum við að tengja þetta saman allt. 

Árið 2027 á Morávekpallurinn 10 ára afmæli og þá verður húllumhæ við erum þegar byrjuð að skipuleggja hann þar verða kannski fleiri uppákomur alla helgina eða stórtónleikar en allt fer það fram á pallinum okkar góða. Til hvers að eiga pall ef þú býður engum heim? Til hvers að skemmta alltaf bara sjálfum sér? Við viljum skemmta öðrum líka. 

Kristín G Gestsdóttir

Tags: