FAS og Leikfélag Hornafjarðar setja upp Söguna af bláa hnettinum

0
845
Þröstur Guðbjartsson

Þann 9. janúar síðastliðinn var haldinn kynningar­fundur vegna uppsetningar á leikverki hjá FAS á vorönn. Líkt og undanfarin ár vinnur skólinn með Leikfélagi Hornafjarðar að uppsetningunni. Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason er viðfangsefnið og leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Þröstur lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands 1978. Hefur hann allar götur síðan starfað sem lausráðinn leikari og leikstjóri við hin ýmsu leikhús og leikhópa, m.a. Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Leikhús Frú Emilíu og fleiri. En hlutverk hans eru um 50 talsins, auk hlutverka í kvikmyndum, m.a. Sódóma Reykjavík og Agnesi auk hlutverka í sjónvarpsþáttum svo sem Dagvaktinni og Heimsendi.
Í texta um Bláa hnöttinn segir:

„Á bláum hnetti lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Þetta eru eiginlega villibörn því enginn skipar þeim fyrir verkum. Börnin sofna þar sem þau verða þreytt og borða þegar þau eru svöng en leika sér þar sem þeim dettur í hug. Eitt kvöldið þegar Brimir og Hulda eru stödd í Svörtufjöru birtist stjarna á himni sem stefnir beint á þau! Stjarnan lendir í fjörunni með mikilli sprengingu en í reyknum mótar fyrir skuggalegri veru sem starir út í myrkrið. Þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um myrka skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá sem aldrei fyrr á vináttu og ráðsnilld barnanna á bláa hnettinum.“

Æfingar hefjast mánudaginn 20. janúar og áætluð frumsýning er í lok mars í Mánagarði. Uppsetningin er hluti af námi á lista- og menningarsviði í FAS og koma allir kennarar sviðsins að henni. Þátttaka í verkefninu er þó einnig opin fyrir aðra eins og verið hefur.