FAS mætir MH í Gettur betur

0
366
Selma Ýr, Anna Lára og Sævar Rafn keppa fyrir hönd FAS

Enn og aftur er spurningkeppnin Gettu betur farin af stað og að sjálfsögðu tekur FAS þátt. Í ár taka 29 skólar þátt í keppninni. Þegar lið voru dregin saman kom í ljós að mótherji FAS í fyrstu umferð er MH.
Lið FAS skipa þau Anna Lára Grétarsdóttir, Selma Ýr Ívarsdóttir og Sævar Rafn Gunnlaugsson. Til vara eru Almar Páll Lárusson, Aníta Aðalsteinsdóttir og Stígur Aðalsteinsson. Það er fyrrum keppandi í Gettu betur fyrir FAS sem þjálfar liðið en við erum auðvitað að tala um Sigurð Óskar Jónsson.
Viðureign FAS og MH verður í kvöld fimmtudaginn 13. janúar. Hægt er að fylgjast með viðureigninni í beinu hljóðstreymi frá RÚV á https://www.ruv.is/thaettir/gettu-betur og hefst viðureignin um 19:40. Að þessu sinni eru engir áhorfendur leyfðir og það er auðvitað vegna COVID.
Við óskum okkar fólki góðs gengis og hvetjum alla til að hlusta á viðureignina.