Í janúar á þessu ári ákváðum við að fara aftur af stað með útgáfu Eystrahorns og prófa það til eins árs. Það hefur verið sérstaklega gaman að fylgjast með blaðinu taka á sig mynd á þessu ári og enn skemmtilegra að finna fyrir öllum jákvæðu viðbrögðunum og sjá hvernig því hefur verið tekið. Frá upphafi hefur markmiðið verið að Eystrahorn verði héraðsmiðill íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði og vettvangur fyrir það sem er að gerast í samfélaginu, eins konar skilaboðaskjóða okkar allra.

Auglýsing

Þrjú blöð eiga eftir að koma út á árinu 2026. Næsta blað kemur út fyrsta fimmtudaginn í nóvember og í desember stefnum við á tvö blöð: annað fyrsta fimmtudaginn í desember og síðan jólablað fimmtudaginn 17. desember.

Við þekkjum það öll að áður en við vitum af eru jólin komin og því þurfum við hvað úr hverju að fara að undirbúa jólablaðið. Eins og síðast sjáum við fyrir okkur stútfullt blað sem notalegt verður að setjast niður með um jólin og njóta. Við viljum því hvetja ykkur til að senda okkur efni sem gæti átt þar heima: jólasögur, jólaminningar, gamlar ljósmyndir, frásagnir af jólahaldi fyrri tíma, sérstakar hefðir eða annað sem tengist jólum og aðventu í Hornafirði. Efnið þarf alls ekki að vera fullunnin grein; góð saga eða skemmtileg ábending getur verið alveg nóg til að byrja með.

Eystrahorn eftir áramót

Við höfum tekið þá ákvörðun að stefna ótrauð á áframhaldandi útgáfu Eystrahorns eftir áramót, í svipaðri mynd og hingað til. Stefnt er að útgáfu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, nema í janúar og með sama fyrirkomulagi í sumarfríinu og í ár. Á sama tíma viljum við efla eystrahorn.is og nýta vefinn betur á milli blaða.

Þar viljum við gjarnan fá fleiri með okkur í lið. Félög, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar mega endilega senda okkur fréttatilkynningar eða annað efni sem gæti átt heima á vefnum. Við metum þá hvort efnið eigi best heima þar, í næsta prentaða Eystrahorni eða hvoru tveggja.

Til þess að hægt sé að halda útgáfunni áfram til lengri tíma þarf reksturinn líka að standa undir sér. Fastir styrktaraðilar og fyrirtæki í reglulegu auglýsingasamstarfi skipta þar miklu máli. Við leitum því sérstaklega til fyrirtækja sem vilja leggja útgáfunni lið með föstum auglýsingasamningum eða styrktarframlögum og hjálpa okkur þannig að byggja upp sjálfbæran rekstrargrundvöll.

Að lokum langar mig að þakka öllum sem þegar styðja við blaðið á einn eða annan hátt: styrktaraðilum, áskrifendum, auglýsendum, þeim sem senda inn efni, sjálfboðaliðum við útburð og lesendum. Það er aðeins með þátttöku margra sem svona lítill héraðsmiðill getur dafnað.

Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Ritstjóri Eystrahorns

Tags: