Allir krakkarnir sem tóku þátt í ráðstefnunni

Helgina 18.–20. september fóru fulltrúar úr Ungmennaráði úr Sveitarfélaginu Hornafirði á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsa sem haldin var á Reykjum í Hrútafirði. Í hópnum voru Vaka Sif, starfsmaður Þrykkjunnar, Freyja Dís úr FAS og þeir Adam Bjarni og Sigurður Arnar, sem báðir eru nemendur í 10. bekk.

Auglýsing

Lagt var af stað frá Höfn klukkan 8:30 á föstudagsmorgni og ekið til Egilsstaða. Þangað var komið upp úr hádegi. Á Egilsstöðum hitti hópurinn Eygló Rut, forstöðumann frístundamála hjá Fjarðabyggð, og annað ungmenni sem einnig var á leið á ráðstefnuna. Þaðan hélt hópurinn áfram saman til Reykja. 

Komið var á Reyki um klukkan 18:30 og farið beint í kvöldmat. Eftir það tók við dagskrá helgarinnar og var ýmislegt gert strax fyrsta kvöldið.

Dagskráin yfir helgina var mjög fjölbreytt. Þar var bæði fræðsla, hópastarf, leikir og ýmislegt annað skemmtilegt. Á laugardeginum voru meðal annars fyrirlestrar og vinnusmiðjur þar sem rætt var um samfélagsmiðla, símanotkun, athygli og ýmislegt sem tengist daglegu lífi ungs fólks. 

Það var langt frá því að öll helgin færi í að sitja og hlusta. Farið var í íþróttakeppni og ýmsa leiki, sem var skemmtilegt og skapaði góða stemningu. Einnig voru grillaðir sykurpúðar og nóg var af tíma til að spjalla, slaka á og kynnast hinum þátttakendunum betur. Eitt af markmiðum helgarinnar var að þátttakendur kynntust nýju fólki og fengu að prófa eitthvað nýtt. 

Á síðasta deginum var svokallað kaffihúsaspjall. Þar fengu þátttakendur að hitta alls konar fólk og setjast niður með því í stutt spjall. Gestirnir komu úr mismunandi áttum, meðal annars úr íþróttum, félagsstarfi og stjórnmálum. Eftir um 15 mínútur var skipt um borð og þannig gafst tækifæri til að ræða við fleiri en einn. Þetta var góð leið til að fá að heyra mismunandi sjónarmið og um leið gefa ungu fólki tækifæri til að segja frá sínum eigin hugmyndum og skoðunum. Það var lögð áhersla á að þessar umræður væru óformlegar og að gestirnir fengu líka að hlusta á raddir ungmennanna. 

Ráðstefnunni lauk á sunnudeginum og var lagt af stað frá Reykjum um klukkan 13:30. Eftir langa heimferð var hópurinn kominn aftur til Hafnar um klukkan 23:30 um kvöldið. 

Ferðin var mjög vel heppnuð og helgin skemmtileg og fjölbreytt. Það var nóg að gera, bæði fræðandi og skemmtilegt, og um leið gott tækifæri til að hitta ungt fólk frá öðrum stöðum á landinu og kynnast nýju fólki.

Vaka Sif Tjörvadóttir
Forstöðumaður Þrykkjunnar

Tags: