Svipmyndir úr starfi Leikfélagsins

Leikfélag Hornafjarðar vinnur nú ötullega að undirbúningi Söngleikjasprengju sem fyrirhugað er að setja upp í nóvember. Þar mun hópurinn flytja vel valin lög úr söngleikjum og rýna í hugarheima þeirra við skemmtilegar aðstæður, þar sem markmiðið er fyrst og fremst að njóta, hafa gaman og skemmta sér.

Auglýsing

Ferlið hefst á kynningarfundi sem verður haldinn í Sindrabæ 12. október kl. 20:00. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu eru velkomnir á fundinn.

Verkefnið er ætlað fólki 16 ára og eldra og hvetjum við öll áhugasöm til að mæta. Einnig er hægt að fylgjast með Leikfélagi Hornafjarðar á Instagram og Facebook.

Aðsend grein
Leikfélag Hornafjarðar

Tags: