
Miðvikudaginn 19. ágúst sl. komu saman tengiliðir farsældar ásamt starfsfólki stuðningsþjónustu leik-, grunn- og framhaldsskóla í sveitarfélaginu. Tengiliðir farsældar starfa í skólum okkar ásamt heilsugæslu og félagsþjónustu. Til að leiða vinnustofuna komu sérfræðingar frá Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) sem voru bæði með kynningu á farsældarþjónustu og stýrðu öflugri vinnustofu þar sem rýnt var í verkfæri farsældar með úrvinnslu raunhæfra dæma.
Nú þegar eru málefni um 50 barna í samþættri þjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þessi þjónusta fer ýmist fram hjá tengilið í skóla, á heilsugæslu eða hjá félagsþjónustu, í gegnum málstjórn þar sem málsstjórar félagsþjónustu stýra farsældarteymum fjölskyldna, eða í málstjórn hjá barnaverndarþjónustu. Þetta þýðir að um 10% barna í sveitarfélaginu njóta nú þegar samþættrar þjónustu.
Í erindi sérfræðinga BOFS kom hins vegar fram að á landsvísu sé áætlað að málefni allt að 20% barna í hverju sveitarfélagi eigi erindi í samþætta þjónustu. Það er því ljóst að þótt innleiðing laganna gangi vel hér í Hornafirði erum við staðráðin í að gera enn betur og ná til fleiri barna og fjölskyldna á réttum tíma.
Farsældarþjónusta er ávallt veitt á forsendum og með samþykki fjölskyldna. Við viljum því hvetja alla foreldra og börn, sem telja sig hafa hag af stuðningi eða samþættingu þjónustu, til að setja sig í samband við tengilið í sínu nærumhverfi.

Nöfn og tengiliðaupplýsingar ásamt frekara fræðsluefni um farsældarþjónustu má finna á heimasíðu sveitarfélagsins: www.hornafjordur.is/thjonusta/skolar-og-born/farsaeld-barna
Frábær andi ríkti á vinnustofunni og voru þátttakendur sammála um að dagurinn hafi verið afar gagnlegt og hvetjandi innlegg fyrir komandi vetur. Tengiliðir farsældar eru fullir tilhlökkunar að hefja störf af krafti eftir sumarleyfi og taka hlýlega á móti öllum sem óska eftir samtali um hvernig farsældarþjónusta getur stutt við fjölskyldur.



