Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frábæran árangur í borðtennis á undanförnum vikum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Anna Karen hlotið fjölda verðlauna, bæði í opnum flokki á Íslandsmóti ófatlaðra og á Íslandsmóti fatlaðra. Anna Karen er aðeins níu ára gömul og æfir borðtennis með ÍFR (íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík) en hún keppir fyrir hönd Ungmennafélagsins Vísis í Suðursveit sem stofnaði borðtennisdeild árið 2025. Anna Karen er ættuð frá Jaðri í Suðursveit en hún er dóttir þeirra Bjarna Malmquist Jónssonar og Sigrúnar Elfu Bjarnadóttur. Anna Karen æfir því reglulega á Hrollaugsstöðum þegar hún heimsækir ömmu og afa í sveitina.

Auglýsing
Anna Karen með bikarinn í hönd.
Mynd: Magnús Orri
Anna Karen með bikarinn í hönd. Mynd: Magnús Orri

Á Íslandsmóti fatlaðra gerði Anna Karen sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í einliðaleik eftir æsispennandi leik þar sem Anna kom sterk inn eftir tvær tapaðar lotur við stigahæsta leikmanninn í opnum flokki kvenna og vann næstu þrjár lotur og tryggði sér þar með 3-2 sigur. Anna Karen keppti á mótinu meðal annars við tvo fullorðna keppendur og vann til silfurverðlauna bæði í tvenndarleik og tvíliðaleik kvenna og bronsverðlaun í flokki 6 til 10. Til fróðleiks þá er flokkur 1 til 5 fyrir þá sem keppa í hjólastól. Anna er í flokki 6 og keppir því í flokki 6 til 10. Því hærri sem flokkurinn er, þeim mun minni er hreyfihömlunin. Í flokki 6 eru t.d. þeir sem eiga erfitt með gang og eiga þar af leiðandi erfitt með að hreyfa sig mikið við borðið, en Anna hefur sýnt framfarir í hreyfigetu eftir að hafa byrjað að stunda borðtennis sem er frábært og hjálpar henni í daglegu lífi.

Vinkonurnar Anna Karen og Agnes
Lovísa. Mynd: Magnús Orri
Vinkonurnar Anna Karen og Agnes Lovísa. Mynd: Magnús Orri

Á Íslandsmóti ófatlaðra tryggði Anna sér annan Íslandsmeistaratitil, að þessu sinni í tvíliðaleik í flokki 14 til 15 ára ásamt æfingarfélaga sínum, hinni fjórtán ára gömlu Agnesi Lovísu Jóhannsdóttur sem æfir einnig með ÍFR. En þær stöllur æfa saman undir styrkri stjórn Hákons Atla Bjarkasonar sem hefur vakið athygli fyrir að fjölga fötluðum iðkendum. Anna Karen og Agnes eru báðar með mikið skerta hreyfigetu, hvor á sinn hátt, og árangurinn því enn eftirtektarverðari. Á sama móti vann Anna Karen jafnframt til silfurverðlauna í einliðaleik 11 ára og tvenndarleik 13 ára.

Ungmennafélagið Vísir hvetur íbúa til að mæta á borðtennisæfingar á Hrollaugsstöðum, það er holl, góð og skemmtileg hreyfing.

Tags: